Bæjarráð
Dagskrá
1.Fjárhagsáætlun 2025-2028
2405023
Rekstraryfirlit janúar - mars 2025. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
2.Stefnumótun í fjármögnun grunnskóla
2501048
Minnisblað frá sviðsstjóra mennta-og tómstundasviðs, ásamt drögum að stefnu um fjármögnun og ráðstöfun fjármuna í grunnskólum Suðurnesjabæjar. Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir sviðsstjóri mennta-og tómstundasviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Bæjarráð þakkar þá vinnu sem unnin hefur verið við mótun stefnu um fjármögnun og ráðstöfun fjármuna í grunnskólum Suðurnesjabæjar, mál í vinnslu.
Bæjarráð þakkar þá vinnu sem unnin hefur verið við mótun stefnu um fjármögnun og ráðstöfun fjármuna í grunnskólum Suðurnesjabæjar, mál í vinnslu.
3.Garðskagi ehf.
2301025
Trúnaðarmál - staða samninga
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela sviðsstjóra stjórnsýslu-og fjármálasviðs að vinna að málinu áfram og leggja niðurstöðu fyrir bæjarráð.
Samþykkt samhljóða að fela sviðsstjóra stjórnsýslu-og fjármálasviðs að vinna að málinu áfram og leggja niðurstöðu fyrir bæjarráð.
4.Aðalfundur Landskerfis bókasafna
2504013
Fundarboð á aðalfund Landskerfis bókasafna 2025.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að Margrét Ásgeirsdóttir forstöðumaður safna Suðurnesjabæjar fari með umboð Suðurnesjabæjar á aðalfundi Landskerfis bókasafna.
Samþykkt samhljóða að Margrét Ásgeirsdóttir forstöðumaður safna Suðurnesjabæjar fari með umboð Suðurnesjabæjar á aðalfundi Landskerfis bókasafna.
5.Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga - Fyrirspurn varðandi fjárhagsleg áhrif kjarasamninga
2504042
Fyrirspurn frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga þar sem óskað er eftir upplýsingum um fjárhagsleg áhrif kjarasamninga við Kennarasambands Íslands á rekstur sveitarfélagsins. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum hvort brugðist verði sérstaklega við þessum kostnaðarauka og með hvaða hætti. Lagt fram svarbréf bæjarstjóra við fyrirspurn EFS.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
6.Suðurnesjabær og almyrkvinn 2026
2409008
Erindi frá SSS, ósk um tilnefningu á aðal-og varafulltrúa í stýrihóp vegna undirbúnings fyrir almyrkva 2026.
Afgreiðsla:
Einar Friðrik Brynjarsson deildarstjóri umhverfismála verður aðalmaður og Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu-og fjármálasviðs varamaður í stýrihópi vegna undirbúnings fyrir almyrkva 2026.
Einar Friðrik Brynjarsson deildarstjóri umhverfismála verður aðalmaður og Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu-og fjármálasviðs varamaður í stýrihópi vegna undirbúnings fyrir almyrkva 2026.
7.EBÍ - Fundargerð og samþykktir 2025
2504058
Erindi frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands (EBÍ) með upplýsingum um breytingar á samþykktum fyrir EBÍ, sem fela í sér að öll aðildarsveitarfélög EBÍ kjósi í fulltrúaráð félagsins eftir sveitarstjórnarkosningar en áður átti það einungis við um bæi og héraðsnefndir. Lögð fram fundargerð fulltrúaráðs EBÍ dags. 19.02.2025.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
8.HB64 - Viljayfirlýsing IðunnH2
2504028
Lögð fram viljayfirlýsing Kadeco og Suðurnesjabæjar við IðunniH2, um svæði til uppbyggingar á þróunarsvæðinu HB64, K64 Hringrásariðngarðinum.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
9.Stýrihópur um mögulega nýtt íþróttafélag í Suðurnesjabæ
2412038
Uppfærð drög að viljayfirlýsingu um samning við mögulega nýtt íþróttafélag í Suðurnesjabæ.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða vinna eftir fyrirliggjandi drögum.
Samþykkt samhljóða vinna eftir fyrirliggjandi drögum.
10.Barna- og ungmennaþing
2503114
Minnisblað frá íþrótta-og tómstundafulltrúa um barna- og ungmennaþing í Suðurnesjabæ í maí 2025.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að framkvæmd barna-og ungmennaþings verði samkvæmt minnisblaðinu og kostnaðaráætlun samþykkt.
Samþykkt samhljóða að framkvæmd barna-og ungmennaþings verði samkvæmt minnisblaðinu og kostnaðaráætlun samþykkt.
11.Samtök sjávarútvegssveitarfélaga-fundargerðir
2210005
Fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga janúar, mars og apríl 2025.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
Fundi slitið - kl. 16:45.
Lagt fram.