Bæjarráð
Dagskrá
1.Skráningardagar í leikskólum Suðurnesjabæjar
2502053
Erindi frá fræðsluráði varðandi skráningardaga í leikskólum.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu fræðsluráðs um að farið verði eftir tillögu 3 í minnisblaði sviðsstjóra mennta-og tómstundasviðs. Miðað verði við að framkvæmd taki gildi frá og með næsta skólaári leikskólanna.
2.Íbúðarhúsnæði fyrir 60 ára og eldri
2502102
Tillaga frá fulltrúum D, O og S-lista: Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjóra skipulags-og umhverfissviðs að láta hefja vinnu við að skipuleggja lóðir fyrir íbúðarhúsnæði fyrir 60 ára og eldri í Suðurnesjabæ. Jafnframt samþykkir bæjarráð að fela bæjarstjóra að eiga viðræður við félög sem vinna að því verkefni að byggja upp og reka slíkar íbúðir, um mögulegt samstarf við Suðurnesjabæ um verkefnið.
Tillagan samþykkt samhljóða.
3.Hjúkrunarheimili í Suðurnesjabæ
2502101
Tillaga frá fulltrúum D, O og S-lista: Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjóra skipulags-og umhverfissviðs að skoða möguleika á lóð í Suðurnesjabæ til staðsetningar á hjúkrunarheimili fyrir aldraða og leggja fyrir framkvæmda-og skipulagsráð tillögu um staðsetningu.
Tillagan samþykkt samhljóða.
4.Samþykkt um stjórn Suðurnesjabæjar - Endurskoðun 2025
2502100
Tillaga frá fulltrúum D, O og S- lista: Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að bæjarstjóra verði falið að leggja hið fyrsta fyrir bæjarstjórn tillögur að endurskoðun á Samþykkt um stjórn Suðurnesjabæjar.
Lagt er til að í 1.gr., um skipan bæjarstjórnar verði fjölda fulltrúa í bæjarstjórn fækkað úr níu í sjö. Framangreind breyting taki gildi við sveitarstjórnarkosningar vorið 2026.
Lagt er til að í 1.gr., um skipan bæjarstjórnar verði fjölda fulltrúa í bæjarstjórn fækkað úr níu í sjö. Framangreind breyting taki gildi við sveitarstjórnarkosningar vorið 2026.
Tillagan samþykkt samhljóða.
5.Sveitarfélagið Vogar - sameiningarmál
2309116
Erindi frá samgöngu-og sveitarstjórnarráðherra dags. 07.02.2025 með upplýsingum og svörum við áherslumálum sveitarfélaganna gagnvart ríkinu vegna óformlegra viðræðna um sameiningu sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Samþykkt samhljóða að vísa erindinu til bæjarstjórnar.
6.Fasteignafélag Sandgerðis ehf - Stjórnarmálefni
2502105
Fundargerðir stjórnar Fasteignafélags Sandgerðis ehf dags. 21.01.2025 og 12.02.2025.
Lagt fram.
7.Fjárhagsáætlun 2025-2028
2405023
Tillaga um viðauka við gjaldskrá íþróttamiðstöðva 2025 vegna útleigu á íþróttamiðstöðvum vegna annarrar starfsemi en íþróttaviðburða.
Tillaga um viðauka við gjaldskrá íþróttamiðstöðva samþykkt samhljóða.
Fundi slitið - kl. 15:55.