Fara í efni

Bæjarráð

158. fundur 29. janúar 2025 kl. 15:30 - 16:00 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Sigursveinn Bjarni Jónsson formaður
  • Laufey Erlendsdóttir aðalmaður
  • Oddný Kristrún Ásgeirsdóttir varamaður
  • Anton Kristinn Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Magnús Stefánsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Magnús Stefánsson bæjarstjóri
Dagskrá

1.Stefna um aðstöðu og þjónustu við aldraða í Suðurnesjabæ - Stýrihópur 2025

2501108

Drög að verkefnislýsingu og tillaga um skipan stýrihóps.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að stýrihópur um verkefnið verði skipaður eftirtöldum aðilum: Laufey Erlendsdóttir, Magnús Sigfús Magnússon,fulltrúi velferðarsviðs, fulltrúi mennta-og tómstundasviðs og einn fulltrúi eldri borgara í Suðurnesjabæ. Drög að verkefnislýsingu samþykkt og vísað til stýrihópsins.

2.Félagsþjónusta - Sameiginlegur rekstur sveitarfélaga á Suðurnesjum

2501006

Erindi frá Grindavíkurbæ dags. 17.01.2025 um uppsögn samnings um rekstur sameiginlegra þjónustuúrræða fyrir fatlað fólk á Suðurnesjum. Í erindinu kemur m.a. fram samþykkt bæjarráðs Grindavíkur frá 14.janúar 2025 um að Grindavíkurbær hætti samstarfi um Hæfingarstöðina og Björgina í Reykjanesbæ og skammtímavistun í Suðurnesjabæ með þriggja mánaða uppsagnarfresti frá og með 1.janúar.
Afgreiðsla:
Suðurnesjabær hefur móttekið uppsögn Grindavíkurbæjar á samningi um sameiginlegan rekstur sveitarfélaganna á Suðurnesjum á skammtímavistun í Heiðarholti, Hæfingarstöð og Björginni. Í bókun bæjarráðs Grindavíkurbæjar þann 14. janúar sl. kemur fram að uppsögnin taki gildi 1. janúar 2025 með þriggja mánaða uppsagnarfresti.

Bæjarráði Suðurnesjabæjar þykir miður að Grindavíkurbær gangi út úr sameiginlega reknum úrræðum sveitarfélaganna á Suðurnesjum, sér í lagi þar sem einstaklingar með lögheimili í Grindavík nýta þá þjónustu sem úrræðin veita.

Þá telur bæjarráð að þriggja mánaða uppsagnarfrestur sé of skammur og leggur áherslu á að uppsagnarfrestur sé a.m.k. 6 mánuðir, m.a. vegna þess að brotthvarf Grindavíkurbæjar úr samstarfinu mun hafa veruleg áhrif á fjárhagsáætlanir hinna samstarfssveitarfélaganna.

Bæjarráð Suðurnesjabæjar leggur einnig áherslu á að Grindavíkurbær tryggi að nauðsynlegum upplýsingum um áhrif ákvörðunar þeirra verði komið á framfæri með skýrum hætti við þá einstaklinga og fjölskyldur sem úrsögnin mun hafa áhrif á.

3.Fjárhagsáætlun 2024 - viðaukar

2308041

Tillaga um viðauka nr. 11, akstursþjónusta fatlaðra.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að vísa viðaukanum til staðfestingar hjá bæjarstjórn.

4.Byggðakvóti

2212034

Erindi frá matvælaráðuneyti dags. 22.janúar 2025, tilkynning um úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2024/2025, til Garðs 65 þíg.tonn og til Sandgerðis 65 þíg.tonn.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að óska eftir við matvælaráðuneytið að ákvæði reglugerðar nr. 817/2024 gildi um úthlutun byggðakvóta byggðarlagsins Garðs með breytingum skv. eftirfarandi:

a)
Ákvæði 1.máls. 1.mgr. 4.gr. reglugerðar nr. 819/2024 verði:
Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1.gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3.gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlufallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1.september 2023 til 31.ágúst 2024.

b)
Ákvæði 1.málsl. 1.mgr. 6.gr. reglugerðar nr. 819/2024 breytist og verður:
Fiskiskipum er skylt að landa innan sveitarfélagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta Garðs og til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1.september 20234 til 31.ágúst 2025

5.Þjóðlendumál - eyjar og sker

2402041

Tilkynning frá Óbyggðanefnd varðandi eyjar og sker úti fyrir strönd Suðurnesjabæjar. Málið var á dagskrá 157.fundar bæjarráðs og var til umfjöllunar á 60. fundi framkvæmda-og skipulagsráðs dags. 22.01.2025. Framkvæmda-og skipulagsráð leggur til að gerðar verði athugasemdir um kröfur Óbyggðanefndar varðandi eyjar og sker utan við Sandgerði og Sandgerðishöfn. Lagt fram minnisblað frá bæjarstjóra með tillögu um afstöðu bæjarráðs til málsins.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að láta gæta hagsmuna Suðurnesjabæjar og lýsa kröfum til Óbyggðanefndar varðandi eyjar og sker utan við Sandgerði og Sandgerðishöfn.

6.Erindi frá Knattspyrnufélagi Reynis vegna 90 ára afmælishátíðar

2501062

Erindi frá aðalstjórn Knattspyrnufélagsins Reynis varðandi 90 ára afmæli félagsins og fyrirhugaðrar afmælishátíðar síðar á árinu.
Afgreiðsla:
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að koma erindinu til úrvinnslu.

7.Stafræn smiðja á Suðurnesjum Fab-Lab

2210070

Ársskýrsla Fab Lab Suðurnes fyrir árið 2024 kynnt.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

8.Könnun á þjónustu sveitarfélaga

2501114

Niðustaða þjónustukönnunar Gallup fyrir Suðurnesjabæ 2024 kynnt. Könnunin var framkvæmd frá 22.nóvember 2024 til 6.janúar 2025 á þjónustu sveitarfélaga.
Afgreiðsla:
Bæjarráð fagnar niðurstöðum skýrslunnar, þar sem m.a. kemur fram að íbúar eru almennt ánægðir með þjónustu sveitarfélagsins og ánægjan hefur farið vaxandi. Auk þess má sjá að Suðurnesjabær er í flestum tilfellum yfir landsmeðaltali hvað varðar ánægju íbúa.

9.Menningarsjóður Suðurnesjabæjar

2009041

Tillaga varðandi breytingar á úthlutunarreglum Menningarsjóðs Suðurnesjabæjar.
Afgreiðsla:
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögur um breytingar á úthlutunarreglum og vísar tillögunum til afgreiðslu hjá bæjarstjórn.

10.Afhendingaröryggi á heitu og köldu vatni í Suðurnesjabæ

2501085

Mál á dagskrá að beiðni B-lista. Fyrir liggur erindi frá HS Veitum með svörum og upplýsingum varðandi afhendingaröryggi á heitu og köldu vatni í Suðurnesjabæ. Annars vegar frá lághitaholu í Rockville og hins vegar varavatnsbóli neysluvatns við Árnarétt.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 16:00.

Getum við bætt efni síðunnar?