Tengjumst í leik í Suðurnesjabæ
Flottur hópur fagfólks mennta- og tómstundasviðs Suðurnesjabæjar er þessa dagana í leiðbeinendaþjálfun til að öðlast réttindi til að halda foreldranámskeið Tengjumst í leik á vegum Föruneytis barna.
Föruneyti barna er samstarfsverkefni mennta- og barnamálaráðuneytis og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands um stuðning við uppeldi og nám. Markmið samstarfsverkefnisins er að valdefla foreldra og uppalendur í hlutverki sínu og vinna þannig að stuðningi við foreldra um uppeldi og nám barna sinna. Einnig að styrkja grunnþjónustu við fjölskyldur í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021.
Tengjumst í leik (e. Invest in play) er námskeið fyrir foreldra og forráðamenn barna þar sem áhersla er lögð á jákvæð samskipti og samveru foreldra og barna í gegnum leik. Með því myndast góð tengsl milli foreldra og barna og samband þeirra styrkist. Efni og innihald námskeiðsins er byggt á gagnreyndum aðferðum og rannsóknum á alþjóðlegum vettvangi.
Á námskeiðinu er foreldrum kenndar áhrifaríkar aðferðir sem auka sjálfsöryggi í uppeldishlutverkinu, ásamt því að stuðla að bættri núvitund og draga úr streitu, auka sjálfstjórn og skilning á eigin þörfum sem og þörfum barna sinna. Rannsóknir hafa sýnt að börn sem eiga foreldra sem setið hafa námskeiðið öðlast aukið sjálfstraust, tilfinningalæsi og félags- og námsfærni. Foreldrafræðslan Tengjumst í leik hefur því margþættan ávinning fyrir börn, foreldra og samfélagið í heild. Hún stuðlar að aukinni sjálfstrú foreldra, betri samskiptahæfni barna og dregur úr áhættuhegðun barna og unglinga.
Foreldrum barna í Suðurnesjabæ verður í haust boðið að sækja námskeiðið sem verður nánar auglýst síðar.