Fara í efni

Vitadagar-hátíð milli vita

Vitadagar-hátíð milli vita

Bæjarhátíðin Vitadagar – hátíð milli vita hefst mánudaginn 24. ágúst næstkomandi og stendur fram yfir sunnudaginn 30. ágúst.

Framundan er fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fyrir alla aldurshópa víðsvegar um Suðurnesjabæ. Hátíðarsvæðið í ár verður við Sandgerðisskóla og þar fer fram fjölbreytt dagskrá laugardaginn 29. ágúst. Hátíðarsvæðið skiptist á milli bæjarkjarna á milli ára og var það síðast á Garðskaga.

Það er lífleg og skemmtileg vika framundan í Suðurnesjabæ. Við hvetjum bæjarbúa til að taka virkan þátt í hátíðinni, mæta á viðburði og njóta þess sem í boði verður. Einnig hvetjum við fólk til að skreyta nærumhverfi sitt og setja hátíðarbrag á bæinn. 

Fylgist endilega með á Facebook-síðu Vitadaga þar sem birtast reglulega nánari upplýsingar, tilkynningar og uppfærslur á dagskránni.

Hér má nálgast dagskrá Vitadaga – hátíð milli vita.