Fara í efni

Vilt þú taka þátt í Safnahelgi á Suðurnesjum?

Vilt þú taka þátt í Safnahelgi á Suðurnesjum?

Safnahelgi á Suðurnesjum verður haldin 17.–18. október 2026 og nú er verið að leggja drög að fjölbreyttri dagskrá helgarinnar.

Safnahelgin er árlegt samstarfsverkefni safna, setra, sýninga, félaga og annarra sem sinna menningarstarfi á Suðurnesjum. Markmiðið er að opna dyrnar að fjölbreyttu menningarstarfi á svæðinu og bjóða íbúum og gestum upp á áhugaverða og fjölbreytta dagskrá.

Vilt þú vera með?

Við leitum að aðilum sem vilja taka þátt með viðburði, sýningu eða annarri dagskrá helgina 17.–18. október.

Til dæmis gæti verið í boði:

  • Sýningar og opið hús
  • Sögugöngur og fræðsla
  • Tónlist og menningarviðburðir
  • Vinnustofur og handverk
  • Dagskrá fyrir börn og fjölskyldur
  • Eða eitthvað allt annað sem tengist menningu, sögu og samfélagi Suðurnesja.

Þátttaka er opin öllum sem vilja leggja sitt af mörkum og dagskráin þarf að vera án aðgangseyris.

Þeir sem taka þátt fá kynningu í sameiginlegu markaðsefni Safnahelgar og á safnahelgi.is, auk þess sem verkefnið gefur góð tækifæri til að vekja athygli á starfsemi og menningarstarfi á Suðurnesjum.

Skráning og upplýsingar

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt eru beðnir um að senda hugmyndir og upplýsingar um viðburðinn í síðasta lagi 2.október á margret@sudurnesjabaer.is