Þjóðaratkvæðagreiðsla í Suðurnesjabæ 29. ágúst 2026
Landskjörstjórn hefur gefið út upplýsingabækling í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem fram fer 29. ágúst 2026 um hvort hefja eigi að nýju aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið.
Markmið bæklingsins er að veita skýrar og hlutlausar upplýsingar um atkvæðagreiðsluna og útskýra meðal annars hvað Evrópusambandið er, hvað felst í aðildarviðræðum, hver munurinn er á Evrópusambandinu og EES og hvað felst í því að kjósa já eða nei. Jafnframt er tekið fram að bæklingurinn taki ekki afstöðu til málsins heldur sé honum ætlað að styðja kjósendur við að kynna sér efnið.
Við hvetjum íbúa til að kynna sér bæklinginn.
Upplýsingasíða landskjörstjórnar
Hver má kjósa?
Íslenskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi og hafa náð 18 ára aldri á kjördag. Erlendir ríkisborgarar eiga ekki kosningarrétt við þjóðaratkvæðagreiðslu og geta því ekki kosið.
Kosning utan kjörfundar
Ef kjósendur geta ekki kosið á kjördag er hægt að kjósa utan kjörfundar, hjá sýslumönnum eða erlendis.
Hvar kýs ég?
Kjósandi kýs á kjörstað í því sveitarfélagi sem hann er á kjörskrá í. Kjörskrá verður aðgengileg til skoðunar í ráðhúsunum í Garði og Sandgerði frá 8. ágúst og fram að kjördegi, þar er hægt að fletta upp hvar kjósandi á að kjósa.
Einnig er bent á skra.is þar sem hægt er að finna sinn kjörstað.
Kjörstaðir verða opnir frá 09:00 - 22:00 á kjördag, þann 29. ágúst 2026.
- Kjósendur með lögheimili í póstnúmerum 245 og 246 í Sandgerði kjósa í leikskólanum Grænuborg.
- Kjósendur með lögheimili í póstnúmerum 250 og 251 í Garði kjósa í Gerðaskóla.
Hvernig kýs ég?
- Finndu þína kjördeild
- Hafðu skilríkin tilbúin
- Í þjóðaratkvæðagreiðslunni verður spurt um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Svarkostir á kjörseðlinum verða já og nei.
- Settu X við þann valkost sem þú kýst
- Brjóttu kjörseðilinn saman og settu hann í atkvæðakassann
Aðstoð við kosningu
Allir kjósendur geta fengið aðstoð við að kjósa og þurfa ekki að gefa neinar ástæður fyrir því. Kjósandi getur komið með eigin aðstoðarmann eða fengið aðstoð frá starfsfólki kosninga.
Á kjördag mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur í leikskólanum Grænuborg. Sími: 899-6317.