Sveitarstjórnarkosningar 2026
Sveitarstjórnarkosningar 2026
03. mars 2026
Sveitarstjórnarkosningar verða laugardaginn 16. maí 2026.
Athygli er vakin á því að skilafrestur framboða vegna sveitarstjórnarkosninga 2026 er á hádegi 10. apríl 2026.
Mælst er til þess að framboð nýti rafrænt meðmælendakerfi fyrir söfnun meðmæla. Kerfið opnaði 3. mars, sjá nánari upplýsingar á vef Landskjörstjórnar.
Til einföldunar mælir Landskjörstjórn með að oddvitar framboða skrái sig fyrir meðmælendalistum á island.is
Ef spurningar vakna hafið samband við yfirkjörstjórn á netfangið elsa@sudurnesjabaer.is
Nánari upplýsingar um skil á framboðum verða auglýst síðar.