Sundlaugarvörður óskast
Sundlaugarvörður óskast
02. júlí 2021
Laus er til umsóknar 97 % staða kvenkyns sundlaugarvarðar við Íþróttamiðstöð Sandgerðis.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, lokið námskeiði í skyndihjálp og standast sundpróf laugarvarða samkvæmt reglugerð um hollustuhætti á sund og baðstöðum.
Í starfi sundlaugarvarðar felst m.a:
- Öryggisvarsla við sundlaug og sundlaugarsvæði.
- Klefavarsla/baðvarsla/gangavarsla/ rýmisvarsla.
- Baðvarsla í kvennaklefum
- Afgreiðsla og önnur þjónusta við gesti.
- Þrif.
Hæfniskröfur:
- Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Reynsla af starfi með börnum og unglingum.
- Tölvukunnátta
- Hreint sakavottorð.
Laun taka mið af starfsmati og kjarasamningum viðkomandi BSRB/ASÍ félaga við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður Einar Karl Vilhjálmsson, í síma 692-8527 eða í tölvupósti á netfangið einarkarl@sudurnesjabaer.is
Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 19. júlí 2021.
Umsóknum ásamt ferilskrá skal skila á netfangið einarkarl@sudurnesjabaer.is