Suðurnesjabær styrkir söfnun fyrir brjóstaskimunartæki
Bæjarráð Suðurnesjabæjar hefur samþykkt að styrkja söfnun fyrir brjóstaskimunartæki til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) um 1.000.000 kr. .
Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi (SAR) standa fyrir söfnuninni ásamt einstaklingum og félagasamtökum. Markmiðið er að konur á Suðurnesjum geti farið í brjóstaskimun í heimabyggð og að efla forvarnir og lýðheilsu á svæðinu.
Í afgreiðslu bæjarráðs frá fundi ráðsins þann 28. október sl. er framtaki SAR og allra sem að söfnuninni standa fagnað. Þar segir að snemmgreining brjóstakrabbameins skipti sköpum og að mikilvægt sé að konur á Suðurnesjum hafi gott aðgengi að skimun í heimabyggð. Vegna mikilvægis verkefnisins fyrir samfélagið allt samþykkti bæjarráð styrkinn.
Auk framlags sveitarfélagsins hafa bæjarfulltrúar Suðurnesjabæjar ákveðið að gefa laun sín fyrir fundarsetu á 95. fundi bæjarstjórnar til söfnunarinnar. Alexandra Jóhannesdóttir bæjarstjóri, sem þiggur ekki sérstök laun fyrir fundarsetu, leggur söfnuninni einnig lið og gefur upphæð sem nemur fundarlaunum bæjarfulltrúa fyrir sama fund.
„Þetta er verkefni sem snertir okkur öll. Flest þekkjum við konu sem hefur greinst með brjóstakrabbamein og vitum hversu miklu máli skiptir að greina það snemma. Það á ekki að vera hindrun að þurfa að sækja skimun langt út fyrir heimabyggð. Ég er ánægð með að bæjarstjórn standi saman að þessu og hvet fyrirtæki, félagasamtök og þá íbúa sem geta til að taka þátt,“ segir Alexandra.
Hér er hægt að leggja söfnuninni lið