Fara í efni

Skólahald hefst að nýju að hluta mánudaginn 8. nóvember

Skólahald hefst að nýju að hluta mánudaginn 8. nóvember

Aðgerðastjórn Suðurnesjabæjar kom saman til fundar í dag, sunnudag 7. nóvember, til að fara yfir upplýsingar og atburðarás vegna kórónuveirusmita sem komu upp í síðustu viku í stofnunum sveitarfélagsins. 

Leikskólinn Sólborg hefur verið lokaður frá því fimmtudaginn 4. nóvember þar sem upp komu smit meðal starfsmanna og barna. Leikskólinn verður áfram lokaður mánudaginn 8. nóvember. Allir sem eru í sóttkví fara í sýnatöku á mánudaginn og verður staðan því metin aftur á mánudagskvöld þegar allar niðurstöður úr sýnatökum liggja fyrir. Þá féll öll starfsemi féll niður í Sandgerðisskóla föstudaginn 5. nóvember, einnig starfsemi íþróttamiðstöðvarinnar, tónlistarskólans, félagsmiðstöðvar og bókasafns og hefur starfsemi í þessum stofnunum legið niðri yfir helgina.

Á fundi aðgerðastjórnar var eftirfarandi ákveðið:

Leikskólinn Sólborg verður lokaður mánudaginn 8. nóvember og verður staðan endurmetin á mánudagskvöld þegar niðurstöður úr sýnatökum liggja fyrir.

Í samráði við stjórnendur Sandgerðisskóla fá nemendur í 1. – 5. bekkjum skólans leyfi leyfi frá skóla mánudaginn 8. nóvember og eiga ekki að mæta í skólann fyrr en niðurstöður fást úr síðari sýnatöku hjá þeim sem eru í smitgát.

Kennsla verður í 6. – 10. bekkjum frá morgni mánudags 8. nóvember.

Starfsemi íþróttamiðstöðvar, tónlistarskóla, félagsmiðstöðvar og bókasafns hefst að fullu að morgni mánudagsins 8. nóvember. 

Aðgerðastjórn mun fylgjast náið með þróun mála og verða frekari ákvarðanir varðandi starfsemi stofnana Suðurnesjabæjar teknar eftir því sem aðstæður kalla á næstu daga.

Aðgerðastjórn leggur ríka áherslu á að allir sinni persónulegum smitvörnum, fari varlega og ítrekar að samkvæmt leiðbeiningum yfirvalda er nú í gildi grímuskylda