Fara í efni

Samtal við bæjarstjóra

Samtal við bæjarstjóra

Íbúar geta nú bókað tíma hjá bæjarstjóra með rafrænum hætti. Fyrstu tímar standa til boða frá og með fimmtudeginum í næstu viku.

Í boði verða þrjár leiðir að vali hvers og eins: fjarfundur, símtal eða staðfundur í ráðhúsinu í Garði. Með þessu vill sveitarfélagið gera íbúum enn auðveldara að ná tali af bæjarstjóra, hvort sem erindið varðar stærri málefni sveitarfélagsins eða ábendingar úr nærumhverfinu.

Bókun fer fram hér. Flýtihnappur verður settur á heimasíðu sveitarfélagsins eftir helgina.