Samstarf um Öruggari Suðurnes endurnýjað til ársins 2030
Suðurnesjabær hefur ásamt öðrum sveitarfélögum og lykilstofnunum á Suðurnesjum endurnýjað samstarfsyfirlýsingu um Öruggari Suðurnes til ársins 2030. Markmiðið er að auka öryggi og öryggistilfinningu íbúa, efla forvarnir gegn ofbeldi og afbrotum og bæta þjónustu við þolendur.
Að samstarfinu standa Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, Suðurnesjabær, Vogar, Grindavík, Reykjanesbær, Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Suðurhlíð, Sýslumaðurinn og farsældarfulltrúi Suðurnesja. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum leiðir samstarfið.
Sameiginleg áætlun og regluleg eftirfylgd
Í upphafi hvers vetrar munu samstarfsaðilar móta sameiginlega framkvæmdaáætlun og fylgja aðgerðum hennar eftir. Áhersla verður lögð á að samræma og gera sýnilegra það fjölbreytta forvarnastarf sem þegar fer fram á Suðurnesjum og bregðast við þeim áskorunum sem upp koma hverju sinni. Vinnan verður jafnframt tengd innleiðingu farsældar barna og áætlunum sveitarfélaganna.
Suðurnesjabær fagnar áframhaldandi samstarfi og telur mikilvægt að sveitarfélögin og lykilstofnanir á svæðinu vinni saman að þessum málum. Með því að miðla þekkingu, samræma aðgerðir og nýta sameiginlega krafta getum við stuðlað að öruggara samfélagi fyrir öll.