Safnahelgi á Suðurnesjum 17. – 18. október
Safnahelgi á Suðurnesjum 17. – 18. október
05. október 2026
Safnahelgi á Suðurnesjum verður haldin dagana 17.–18. október og er óhætt að hvetja fólk til að bregða þá undir sig betri fætinum og skipuleggja rúnt um svæðið.
Safnahelgin er árlegt samstarfsverkefni sveitarfélaganna á Suðurnesjum þar sem söfn, setur, sýningar og menningarstarf á svæðinu fær að njóta sín. Markmiðið er að vekja athygli á þeirri fjölbreyttu menningu og sögu sem Suðurnesin hafa að geyma og bjóða gestum að leggja leið sína á milli staða og upplifa eitthvað nýtt.
Undirbúningur Safnahelgarinnar er nú í fullum gangi og verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá víðs vegar um Suðurnesin fyrir gesti á öllum aldri.
Dagskrá helgarinnar verður kynnt nánar þegar nær dregur.
Takið dagana 17.–18. október frá og njótið Safnahelgar á Suðurnesjum!