PMTO foreldranámskeið
PMTO (Parent Management Training – Oregon) er gagnreynt meðferðarúrræði fyrir foreldra og aðra sem koma að uppeldi. Námskeiðið verður haldið fimmtudaga kl. 18:30-20:00 í átta skipti og hefst það 9. október næstkomandi. Námskeiðinu lýkur 27. nóvember. Námskeiðið verður haldið í sal tónlistarskólans í Garði, Suðurnesjabæ.
Þátttökugjald er 4.000 kr. fyrir fjölskyldu. Innifalin eru námskeiðsgögn og léttar veitingar.
Leiðbeinendur: Thelma Björk Guðbjörnsdóttir og Sigrún Pétursdóttir
Námskeiðið er ætlað forsjáraðilum barna á aldrinum fjögurra til tólf ára, með væga hegðunarerfiðleika. Foreldrar munu efla foreldrafærni sína og læra aðferðir til að vinna með hegðun barns. Meðal verkfæra sem unnið er með eru:
- Skýr fyrirmæli
- Hvatningu
- Virk samskipti
- Tilfinningastjórnun
- Mörk
- Lausnaleit
Æskilegt er að báðir foreldrar mæti á námskeiðið og mikil áhersla lögð á að foreldrar mæti í alla tímana.
Nánari upplýsingar veitir Sóley Gunnarsdóttir teymisstjóri Miðjunnar á velferðarsviði Suðurnesjabæjar á netfangið soley@sudurnesjabaer.is og í síma 425-3000.