PMTO foreldranámskeið
PMTO (Parent Management Training – Oregon) er gagnreynt meðferðarúrræði fyrir foreldra og aðra sem koma að uppeldi. Námskeiðið verður haldið miðvikudaga kl. 18:30-20:00 í átta skipti og hefst námskeiðið 7. október næstkomandi. Námskeiðinu lýkur 25. nóvember. Námskeiðið verður haldið í húsnæðinu Sólborg, að Sólheimum 1-5 Suðurnesjabæ.
Þátttökugjald er 4.000 kr. fyrir fjölskyldu. Innifalin eru námskeiðsgögn og léttar veitingar.
Leiðbeinendur: Thelma Björk Guðbjörnsdóttir og Sigrún Pétursdóttir
Námskeiðið er ætlað forsjáraðilum barna á aldrinum fjögurra til tólf ára, með væga hegðunarerfiðleika. Foreldrar munu efla foreldrafærni sína og læra aðferðir til að vinna með hegðun barns. Meðal verkfæra sem unnið er með eru:
- Skýr fyrirmæli
- Hvatningu
- Virk samskipti
- Tilfinningastjórnun
- Mörk
- Lausnaleit
Æskilegt er að báðir foreldrar mæti á námskeiðið og mikil áhersla lögð á að foreldrar mæti í alla tímana.
Skráning fer fram í gegnum þjónustugátt Suðurnesjabæjar. Skráningu lýkur 25. september.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Rósa Laufeyjardóttir teymisstjóri Miðjunnar á velferðarsviði Suðurnesjabæjar á netfangið sigridur@sudurnesjabaer.is og í síma 425-3000.