Fara í efni

Óveður í aðsigi

Óveður í aðsigi

Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun vegna óveðurspár í fyrramálið, fimmtudaginn 26.mars og gildir viðvörunin frá kl. 07:00 í fyrramálið og til kl. 13:00, samkvæmt eftirfarandi:

Suðaustan 20-28 m/s og vindhviður staðbundið yfir 40 m/s. Einnig má búast við talsverðri snjókomu eða slyddu með slæmu skyggni og versnandi færð. Ekkert ferðaveður. Einnig er hætta á foktjóni og er fólk er hvatt til að tryggja lausamuni.

Samkvæmt leiðbeiningum almannavarna og neyðarstjórnar Suðurnesjabæjar fer skólastarf í leik-og grunnskólum Suðurnesjabæjar fram með fyrirvara:

Skólastarf fer fram að svo stöddu, nema annað sé sérstaklega tilkynnt. Foreldrar eru eindregið hvattir til að meta hvort aðstæður séu öruggar fyrir börn að komast í og úr skóla og fylgja börnum sínum inn í skóla og fylgja þeim út til að tryggja öryggi, sérstaklega með hliðsjón af veðri, færð og aðstæðum í nærumhverfi. Forföll vegna veðurs eru skiljanleg og skulu tilkynnt skóla. Upplýsingar verða uppfærðar ef forsendur breytast.

Skólastjórnendur vinna eftir leiðbeiningum um hvernig beri að bregðast við þessum aðstæðum og miðla upplýsingum til forsjáraðila skólabarna.

Auk þessa hefur verið gefin út gul veðurviðvörun milli kl 05:00 og 07:00 í fyrramálið og svo aftur frá kl 13:00 og fram á annað kvöld.

Samkvæmt veðurspá verður slæmt veður á morgun fimmtudag og er fólk hvatt til að sýna varkárni, fylgjast vel með veðurspám og upplýsingum um færð.

Frekari upplýsingar má nálgast á Facebook síðu Almannavarna, einnig á vedur.is og vedur.is/viðvaranir. Þá eru upplýsingar um færð á vegum á vefnum umferdin.is.