Fara í efni

Umsóknir um styrk til náms og verkfæra-og tækjakaupa fatlaðs fólks

Umsóknir um styrk til náms og verkfæra-og tækjakaupa fatlaðs fólks

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrk til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks.

Umsóknum og fylgigögnum skal skila fyrir 30. október 2020

Samkvæmt 25. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 er heimilt að veita fötluðu fólki styrki eða fyrirgreiðslu vegna félagslegrar hæfingar og endurhæfingar sem hér segir:

1.Styrk til verkfæra- og tækjakaupa eða aðra fyrirgreiðslu vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi að endurhæfingu lokinni.

2.Styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga.

Suðurnesjabær úthlutar styrkjum einu sinni á ári og heildarfjárhæð til úthlutunar er ákveðin í fjárhagsáætlun hvers árs.

Umsóknir eru forgangsraðaðar við úthlutun styrkja sbr. fjölda og eðli umsókna.

 

Umsókn um styrk til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks