Opið fyrir umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða
Nú er hægt að sækja um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða vegna verkefna sem fyrirhugað er að framkvæma á árinu 2027. Umsóknarfrestur er til kl. 13:00 þriðjudaginn 27. október 2026.
Sjóðurinn styður við verkefni sem miða að því að bæta öryggi ferðamanna, vernda náttúru og viðhalda og byggja upp ferðamannastaði og ferðamannaleiðir. Sveitarfélög, einkaaðilar og aðrir sem bera ábyrgð á umsjón slíkra staða og leiða geta sótt um styrki. Einnig er mögulegt að fá styrk fyrir undirbúnings- og hönnunarvinnu sem tengist fyrirhuguðum framkvæmdum.
Styrkir sjóðsins eru ætlaðir til afmarkaðra verkefna en ekki almenns rekstrar. Skilyrði fyrir styrkveitingu er meðal annars að ferðamannastaðir séu aðgengilegir almenningi án aðgangseyris, en heimilt er að innheimta gjald fyrir þjónustu sem þar er veitt.
Sérstök áhersla er lögð á verkefni sem styðja við þróun minna sóttra svæða og stuðla að því að ferðamannatímabilið verði lengra.
Áhugasamir geta kynnt sér skilyrði sjóðsins, hvaða verkefni koma til greina og hvaða gögn þurfa að fylgja umsókn á vef Ferðamálastofu.
Nánari upplýsingar má finna á upplýsingasíðu Ferðamálastofu.