Leikskólinn Gefnarborg tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna
Leikskólinn Gefnarborg í Suðurnesjabæ hefur verið tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna í flokki framúrskarandi skólastarfs. Tilnefningin er fyrir verkefnið Læsistengd skynjun.
Tilnefningarnar voru kynntar á alþjóðadegi kennara og verða verðlaunin afhent á Bessastöðum 10. nóvember.
Í verkefninu er fjölskynjun, leikur og útinám nýtt til að efla læsi barna. Unnið er meðal annars með orðaforða, hljóðkerfisvitund, hlustun, ritun og lesfimi í gegnum sögur, söngva, ljóð og bækur.
Fjölskynjun og útinám hafa verið mikilvægir þættir í starfi Gefnarborgar undanfarin ár og eru nú orðnir hluti af kjarnanum í starfsemi leikskólans. Áhersla er lögð á að börnin fái að læra og skapa á eigin forsendum, efla sjálfstæði og félagsfærni og taka virkan þátt í leik og námi.
Tilnefningin er mikil viðurkenning fyrir faglegt starf starfsfólks og stjórnenda Gefnarborgar. Við óskum kennurum, börnum, foreldrum og stjórnendum Gefnarborgar innilega til hamingju með þann heiður sem þeim hlotnast að fá tilnefningu fyrir framúrskarandi skólastarf.