Fara í efni

Könnun á áformum markaðsaðila varðandi uppbyggingu fjarskiptainnviða

Könnun á áformum markaðsaðila varðandi uppbyggingu fjarskiptainnviða

Fyrirhuguð er lagning ljósleiðarakerfis í sveitarfélaginu Suðurnesjabæ sem veita á öruggt þráðbundið netsamband í dreifbýli sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir að tengja öll lögheimili í dreifbýli sveitarfélagsins. Einnig standi eigendum frístundahúsa og fyrirtækja sem staðsett eru í sveitarfélaginu til boða að tengjast ljósleiðarakerfinu.

Gert er ráð fyrir að öllum þjónustuveitum verði heimilað að bjóða þjónustu sína á ljósleiðarakerfinu gegn gjaldi.

Með vísan í 45. gr. laga um opinber innkaup um markaðskannanir er auglýst eftir:

  1. Aðila, eða aðilum, sem sannanlega ætla að koma á ljósleiðaratengingum eða annarri þráðbundinni netþjónustu í sveitarfélaginu Suðurnesjabæ á næstu þremur árum á markaðslegum forsendum.
  2. Hæfum aðila, eða aðilum, til að taka að sér að byggja upp ljósleiðarakerfi með stuðningi frá opinberum aðilum og e.t.v. reka til framtíðar, komi til þess að enginn svari lið A hér að ofan.
  3. Eiganda mögulegra fyrirliggjandi fjarskiptainnviða í sveitarfélaginu Suðurnesjabæ sem er tilbúinn að leggja þá innviði til við uppbygginguna gegn endurgjaldi, sem bjóðist öllum sem lýsa yfir áhuga á uppbyggingu samkvæmt B hér að ofan á jafnræðisgrundvelli.

Áhugasamir skulu senda tilkynningu til Suðurnesjabæjar með rafrænum hætti á netfangið afgreidsla@sudurnesjabaer.is fyrir kl. 12:00 miðvikudaginn 24. febrúar 2021.  Í tilkynningunni skal koma fram nafn og kennitala aðila, auk upplýsinga um ofangreint eftir því sem við á. Hægt er að óska eftir nánari upplýsingum og skýringum og skulu slíkar fyrirspurnir senda á netfangið gg@raftel.is.

Áhugakönnun þessi er ekki skuldbindandi, hvorki fyrir Sveitarfélagið Suðurnesjabæ né þá sem sýna verkefninu áhuga.