Jólaljósin verða tendruð í Suðurnesjabæ á Fullveldisdaginn
Jólaljósin verða tendruð í Suðurnesjabæ á Fullveldisdaginn
24. nóvember 2023
Jólaljósin verða tendruð í Suðurnesjabæ á Fullveldisdaginn þann 1. desember líkt og síðustu ár. Dagskrá verður í báðum byggðakjörnum, Garði og Sandgerði þar sem boðið verður uppá skemmtidagskrá í kjölfar þess að yngstu nemendur grunnskólanna ásamt bæjarstjóra kveikja jólaljós á jólatrjám.
Dagskrá:
17.00 kveikt á jólatrénu við Ráðhúsið í Garði.
- Tónlistaratriði frá tónlistarskólanum í Garði
- Jólasveinar verða á staðnum, heitt súkkulaði og piparkökur.
- Glaðningur verður fyrir yngstu börnin.
18.00 kveikt á jólatrénu við Sandgerðisskóla.
- Tónlistaratriði frá tónlistarskólanum í Sandgerði
- Jólasveinar verða á staðnum, heitt súkkulaði og piparkökur.
- Glaðningur verður fyrir yngstu börnin.