Jóla- og ljósahús Suðurnesjabæjar 2024
Veittar voru viðurkenningar fyrir fallegar jólaskreytingar í Suðurnesjabæ í gær þann 19.desember þegar fulltrúar ferða-,safna- og menningarráðs heimsóttu íbúa þeirra húsa sem hlutu viðurkenningar í ár.
Íbúar Suðurnesjabæjar hafa verið duglegir við að skreyta hjá sér og lífga upp á skammdegið með fallegum jólaljósum.
Val á ljósa- og jólahúsum var í höndum ferða-, safna- og menningarráðs líkt og undanfarin ár. Fjölmargar tilnefningar bárust og vill ráðið þakka fyrir þær. Eigendur og íbúar húsanna fengu gjafabréf frá HS veitum við tilefnið sem nýtist í niðurgreiðslu á rafmagni. HS veitum eru færðar þakkir fyrir þeirra stuðning við verkefnið.
- Jólahús Suðurnesjabæjar árið 2024 er Lyngbraut 4 í Garði.
- Ljósahús Suðurnesjabæjar árið 2024 er Fagurhóll 1 í Sandgerði.
- Sérstakar viðurkenningar: Hólagata 13 í Sandgerði og Skagabraut 16 í Garði.
Íbúum er óskað til hamingju með viðurkenningarnar.
Meðfylgjandi myndir voru teknar við tilefnið en sjón er sögu ríkari og eru íbúar hvattir til þess að fara í gönguferðir og skoða jólaljósin.