Íþróttamaður ársins 2026
Íþróttamaður ársins 2026
06. nóvember 2026
Suðurnesjabær óskar eftir tilnefningum til Íþróttamanns ársins 2026.
Íþrótta- og tómstundaráð Suðurnesjabæjar óskar eftir tilnefningum frá félagasamtökum og almenningi:
- Íþróttafólk sem þykir hafa náð góðum árangri eða skarað fram úr í sinni íþrótt á árinu 2026.
- Einstaklinga sem hafa sýnt einstaka fórnfýsi og vinnusemi í þágu íþrótta- og æskulýðsmála og eiga skilið viðurkenningu á sínu framlagi.
Skila þarf inn tilnefningum fyrir 4. desember n.k. í gegnum þjónustugátt Suðurnesjabæjar.