Innritun í 1.bekk í Suðurnesjabæ
Innritun í 1.bekk í Suðurnesjabæ
25. mars 2026
Innritun er hafin fyrir börn sem eiga að hefja nám í 1. bekk haustið 2026. Umsóknir um skólavist fara nú fram rafrænt í gegnum Nemendagrunn og skráning fer fram með rafrænum skilríkjum. Foreldrar og forráðamenn sækja um skólavist fyrir börn sín í gegnum island.is.
Foreldrum eða forráðamönnum sem ekki hafa rafræn skilríki er bent á að hafa samband við skrifstofu þess grunnskóla sem sótt er um í þar sem veitt er aðstoð við að fylla út og skila umsókn.
Nemendur með lögheimili í Sandgerði sækja um í Sandgerðisskóla og nemendur með lögheimili í Garði sækja um í Gerðaskóla.