Fara í efni

Íbúafundur vegna breytinga á úrgangsmeðhöndlun

Íbúafundur vegna breytinga á úrgangsmeðhöndlun

Kæru íbúar Suðurnesjabæjar, á næstu vikum eru fyrirhugaðar breytingar á flokkun úrgangs við heimili þegar sérsöfnun á lífrænum eldhúsúrgangi bætist við núverandi flokkun. Breytingarnar byggja á lögum um meðhöndlun úrgangs en í þeim er kveðið á um að flokka skuli í fjóra flokka við hvert heimili. Flokkarnir eru pappír/pappi, plast, lífrænn eldhúsúrgangur og blandaður úrgangur.

Af því tilefni er vakin athygli á beinu streymi íbúafundar miðvikudaginn 10. maí kl.18:00 til 19:00. Íbúar Suðurnesjabæjar eru hvattir til að fylgjast með en tilgangur fundarins er að kynna fyrir íbúum þær breytingar sem framundan eru og að svara helstu spurningum. Hægt verður að horfa á fundinn í beinu streymi á Facebook síðu Reykjanesbæjar. Þá verður einnig hægt að nálgast upptöku af honum á sömu síðu.

Við hvetjum alla til þess að kynna sér þetta mikilvæga málefni því lykillinn að árangri er samvinna okkar allra. Áhugasömum er einnig bent á að hægt er að kynna sér væntanlegar breytingar á flokkun úrgangs og sorphirðu á heimasíðu Suðurnesjabæjar eða á vefnum www.flokkum.is