Hertar sóttvarnaraðgerðir og breytt starfsemi hjá stofnunum 25. mars
Hertar sóttvarnaraðgerðir og breytt starfsemi hjá stofnunum 25. mars
24. mars 2021
Aðgerðastjórn Suðurnesjabæjar fundaði í dag þar sem farið var yfir nýja reglugerð um samkomutakmarkanir og smitvarnir vegna farsóttar Covid-19. Ákvæði reglugerðarinnar sem taka gildi á miðnætti 25. mars og gilda til og með 15. apríl 2021 fela í sér hertar aðgerðir gegn faraldrinum.
- Almennar fjöldatakmarkanir miðast við 10 manns, fyrir alla fædda 2015 og fyrr. 2 metra fjarlægðarregla milli einstaklinga gildir.
- Grímuskylda og leiðbeiningar um hana verður óbreytt.
Með hliðsjón af ákvæðum reglugerðarinnar ákveður aðgerðastjórn eftirfarandi aðgerðir varðandi starfsemi og þjónustu Suðurnesjabæjar sem eiga við meðan framangreind reglugerð er í gildi:
Ráðhúsin í Garði og Sandgerði:
- Lokað verður fyrir aðgengi að ráðhúsunum.
- Þeim sem þurfa að reka erindi við starfsfólk í ráðhúsum er bent á að senda erindi í tölvupóstfangið afgreidsla@sudurnesjabaer.is, eða hafa samband í síma 425-3000 og panta viðtal við viðkomandi starfsmenn.
- Starfsmannahópum verður skipt upp í minni hópa og þess gætt að ekki sé samgangur milli hópa.
Íþróttamiðstöðvar
- Íþróttamiðstöðvum verður lokað fyrir aðgengi almennings. Á það við um sundlaugar, íþróttasali, ljósabekki og líkamsræktarstöðvar.
Almenningsbókasafn
- Starfsemi almenningsbókasafns mun liggja niðri og lokað fyrir aðgengi almennings.
Skammtímavistun
- Starfsemi skammtímavistunar í Heiðarholti verður lokað meðan starfsemin verður endurskipulögð.
Skólar
- Grunnskólar og tónlistarskólar verða lokaðir fram að páskaleyfi og verða frekari tilkynningar um starfsemi skólanna gefnar út síðar.
Félagsmiðstöðvar
- Félagsmiðstöðvar ungmenna, eldri borgara og öryrkja verður lokað meðan unnið verður að endurskipulagningu starfseminnar.
Aðgerðastjórn leggur áherslu á að íbúar og starfsfólk Suðurnesjabæjar fari eftir þeim reglum og leiðbeiningum sem almannavarnir, landlæknir og sóttvarnalæknir hafa gefið út er varðar einstaklingsbundnar smitvarnir.