Fara í efni

Góð þátttaka og fjölbreytt dagskrá í Heilsuviku Suðurnesjabæjar

Góð þátttaka og fjölbreytt dagskrá í Heilsuviku Suðurnesjabæjar

Heilsuvika Suðurnesjabæjar fór fram dagana 28. september til 4. október með fjölbreyttri dagskrá fyrir íbúa á öllum aldri. Þátttakan var góð og afar ánægjulegt að sjá hversu margir nýttu tækifærið til að hreyfa sig, njóta samveru og taka þátt í viðburðum vikunnar.

Íbúum var boðið frítt í sund, líkamsrækt og hópatíma alla vikuna. Meðal þess sem var í boði voru línudans, þrektímar, badminton, göngubolti, teygjur og spinning. Þá gafst börnum og ungmennum kostur á að prófa æfingar hjá íþróttafélögunum og njóta leiks og hreyfingar í opnum íþróttasölum.

Samvera og fjölbreytt afþreying skipuðu einnig stóran sess. Eldri borgurum var boðið á viðburðinn „Í góðum félagsskap“ í Samkomuhúsinu í Sandgerði, fjölskyldur gátu skemmt sér með Sólon og Dimmu dúsk og útivistarfólki stóð til boða sjósund í Bæjarskersfjöru og gönguferð frá Melabergi að Hvalsnesi. Í félagsmiðstöðvunum Eldingu og Skýjaborg var lögð áhersla á hreyfingu, fræðslu og hollt og gott millimál.
Heilsuvikan er dýrmætt tækifæri til að kynna það fjölbreytta starf sem stendur íbúum til boða og hvetja fólk til að finna sér hreyfingu og afþreyingu við hæfi. Góð þátttaka íbúa gerði vikuna sérstaklega ánægjulega og sýndi hversu mikils virði það er að skapa tækifæri til samveru.

Suðurnesjabær þakkar íbúum kærlega fyrir þátttökuna og öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum við undirbúning og framkvæmd vikunnar.
Við hvetjum íbúa til að halda áfram að nýta sér fjölbreytt tækifæri til hreyfingar og félagsstarfs í bænum okkar.