Fara í efni

Gerðaskóli auglýsir eftir kennurum fyrir skólaárið 2023-2024

Gerðaskóli auglýsir eftir kennurum fyrir skólaárið 2023-2024

Gerðaskóli auglýsir eftir kennurum í eftirfarandi lausar stöður fyrir skólaárið 2023-2024.

  • Umsjónarkennari á miðstigi í 100% starfi
  • Enskukennari – afleysing fram að áramótum í 100% starfi
  • Heimilisfræði í 100% starfi
  • Sérkennari í 100% starfi
  • Íslenska sem annað tungumál  - afleysing skólaárið 2023-2024 í 100% starfi

Gerðaskóli leitar eftir metnaðarfullum kennurum sem vilja ná góðum árangri í skólastarfi. Ráðið er í laus störf frá 1.ágúst 2023.

Í Gerðaskóla eru um 250 nemendur. Við skólann starfa áhugasamir og metnaðarfullir starfsmenn. Lögð er áhersla á að skapa námsumhverfi þar sem allir eru virkir, öllum líði vel og allir læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu.

Gildi skólans eru; virðing – ábyrgð -  árangur – ánægja

Skólinn er heilsueflandi grunnskóli sem vinnur eftir stefnunni Jákvæður agi með það að markmiði að allir fái tækifæri til að vera besta útgáfan af sjálfum sér í leik og starfi. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans,  www.gerdaskoli.is

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf kennara (fylgi með umsókn)
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla kostur
  • Metnaður og áhugi til að mæta ólíkum nemendum á faglegan, fjölbreyttan og skapandi hátt
  • Áhugi og metnaður fyrir góðum foreldrasamskiptum
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og lausnaleit
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

Gerð er menntunarkrafa um nám í sérkennslufræðum eða öðru sambærilegu fagi sem nýtist  í starfi sérkennara.

Samkvæmt lögum um grunnskóla er skilyrði að umsækjendur hafi hreint sakavottorð.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félag grunnskólakennara

Ráðið er í öll störf óháð kyni og er umsóknarfrestur til 30. mars 2023. Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum skulu berast á netfangið eva@gerdaskoli.is

Nánari upplýsingar um störfin veitir Eva Björk Sveinsdóttir skólastjóri í síma 425 3050