Gauksstaðir – Tillaga að deiliskipulagi
Bæjarráð Suðurnesjabæjar í umboði Bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar, samþykkti 25. júní 2025 tillögu að deiliskipulagi við Gauksstaði L196408.
Í afgreiðslu bæjarráðs segir:
„Bæjarráð hefur farið yfir framkomnar athugasemdir við deiliskipulag við Gauksstaði og tillögur að svörum og viðbrögðum við þeim. Bæjarráð samþykkir samhljóða deiliskipulag við Gauksstaði ásamt umhverfismati og að deiliskipulagið verði sent Skipulagsstofnun til yfirferðar samkvæmt 1.mgr., 42.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt að senda þeim aðilum, er gerðu athugasemdir, umsögn sína um þær.“
Tillaga að deiliskipulagi við Gauksstaði L196408 var auglýst í Skipulagsgátt (mál nr. 1348/2024), Lögbirtingablaðinu, á vef Suðurnesjabæjar og í Víkurfréttum þann 12. nóvember 2024 með fresti til að skila inn umsögnum og athugasemdum til og með 31. desember 2024. Alls bárust 40 umsagnir og athugasemdir á kynningartíma deiliskipulagstillögunnar og áður hafði borist umsögn frá Minjastofnun Íslands dags. 16. ágúst 2024. Eftir að kynningartímanum lauk barst auk þess sérstök umsögn frá Vegagerðinni dags. 23. janúar 2025. Farið hefur verið yfir athugasemdirnar, þeim hefur verið svarað og eftir atvikum hafa þær leitt til breytinga á auglýstri tillögu. Þessum breytingum var ætlað að koma á móts við athugasemdir og/eða minnka áhrif tillögunnar á náttúru og samfélag. Breytingar á tillögunni, frá auglýstri tillögu, teljist þó ekki breytingar í grundvallaratriðum, sbr. 4. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Helstu breytingar og lagfæringar sem gerðar voru á tillögunni eftir auglýsingu eru að sett var ákvæði um að öryggisleið verði tryggð um sjóvarnargarð frá suðurenda skipulagssvæðisins. Bætt var inn kafla um málsmeðferð deiliskipulagsins. Umfjöllun í umhverfismati tillögunnar er aukin og sett var inn ákvæði um aðgerðir til að lágmarka truflun og hættu af völdum þungaflutninga á framkvæmdatíma. Byggingarreitur fyrir þjónustubyggingu var færður til vesturs úr húsaröðinni og jafnframt var staðsetning bílastæða breytt m.t.t. þess að ekki fari stór svæði undir samfelld bílastæði. Byggingarreitur fyrir ferðaþjónustuhús var færður til með það að markmiði að tryggja að ekki þrengi að gönguleið með ströndinni og skapa rými fyrir öryggisleið að sjóvarnargarði. Götur innan svæðisins voru aðlagaðar að tilfærslu byggingareita og bílastæða. Bætt var inn skýringaruppdrætti með sniðmyndum og afstöðumyndum sem sýna hæðarlegu nýrrar byggðar m.t.t. eldri byggðar og áhrif á útsýni og byggðamynstur. Tillagan var uppfærð m.t.t. þess að aðliggjandi landhæð á skipulagssvæðinu verði í samræmi við viðmiðunarreglu Vegagerðarinnar um lágmarks landhæð á lágsvæðum eða í kóta 4,88 skv. bæjarkerfi Reykjanesbæjar og gólfkóti bygginga verði í kóta 5,0 skv. sama kerfi. Jafnframt var bætt inn ákvæði um að landeigendur skuldbindi sig til að vinna með Vegagerðinni og Suðurnesjabæ að úrbótum á sjóvörnum.
Deiliskipulagstillagan hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar og hægt er að nálgast hana ásamt fylgigögnum í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar
- Umsagnir og athugasemdir við auglýsta tillögu og viðbrögð við þeim.
- Deiliskipulag
- Deiliskipulag - Fylgiskjal
Suðurnesjabæ 26. júní 2025.
Jón Ben Einarsson skipulagsfulltrúi