Fara í efni

Frístundamiðstöðin Sólborg formlega opnuð

Frístundamiðstöðin Sólborg formlega opnuð

Formleg opnun frístundamiðstöðvarinnar Sólborgar í Suðurnesjabæ fór fram miðvikudaginn 12. nóvember síðastliðinn. Alexandra Jóhannesdóttir bæjarstjóri flutti ávarp við tilefnið þar sem hún óskaði börnum, ungmennum, starfsfólki og íbúum til hamingju með þennan mikilvæga áfanga og þá auknu þjónustu sem nú stendur til boða.

Frístundamiðstöðin Sólborg hefur fengið nýtt hlutverk sem miðstöð fjölbreytts frístunda- og tómstundastarfs fyrir börn og ungmenni í Suðurnesjabæ, en áður var leikskólastarfsemi í húsinu. Með breytingunum hefur starfsemi sem áður fór fram á fleiri en einum stað verið sameinuð undir einu þaki. Þar má meðal annars nefna Skólasel fyrir yngstu börn grunnskóla, Skýið sem er eftirskólaúrræði fyrir nemendur með fötlun og félagsmiðstöðina Skýjaborg.

Markmiðið með þessari uppbyggingu er að skapa heildstæða og góða umgjörð fyrir börn og ungmenni þar sem þau geta notið fjölbreyttrar þjónustu, tekið þátt í félagsstarfi og átt góðar stundir í öruggu og uppbyggilegu umhverfi.

Með flutningi starfseminnar í Sólborg skapast jafnframt betri aðstaða fyrir bæði börn og starfsfólk. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsnæðinu þar sem lögð var áhersla á vandaða vinnu og að skapa aðstöðu þar sem börn, ungmenni og starfsfólk geta notið sín sem allra best.

Opnun Sólborgar markar mikilvægan áfanga í uppbyggingu frístundaþjónustu í Suðurnesjabæ og er liður í því að efla tækifæri barna og ungmenna til þátttöku í fjölbreyttu og gefandi frístundastarfi.

Með nýju hlutverki Sólborgar hefur orðið til öflugur vettvangur fyrir frístunda- og félagsstarf þar sem velferð, samvera og þarfir barna og ungmenna eru í forgrunni.