Fara í efni

Fræsing og malbikun á Reykjanesbraut 14. og 15. maí.

Fræsing og malbikun á Reykjanesbraut 14. og 15. maí.

Þriðjudaginn 14. maí er stefnt á að fræsa og malbika hægri akrein á Reykjanesbraut, á milla Vatnsleysustrandarvegar og Vogavegar til vesturs. Kaflinn er um 780 m að lengd og hraði verður tekinn niður framhjá framkvæmdasvæði. Viðeigandi merkingar verða settar upp skv. viðhengdu lokunarplani.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 6:00 til kl. 17:00.

Miðvikudaginn 15. maí er stefnt á að fræsa og malbika hægri akrein á Reykjanesbraut, framhjá Vogum á Vatsleysuströnd. Kaflinn er um 2,0 km að lengd og hraði verður tekinn niður framhjá framkvæmdasvæði. Viðeigandi merkingar verða settar upp skv. viðhengdu lokunarplani.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 5:00 til kl. 19:00.

Lokunarplan 14. maí Lokunarplan 15. maí

 

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
 
Ábyrgðarmaður veghaldara er Ólafur 845-0045 og ábyrgðarmaður verktaka er Halldór 660-1916.