Fara í efni

Fjölskyldusvið Suðurnesjabæjar óskar eftir samstarfi við einstaklinga og fjölskyldur til að sinna fjölbreyttum verkefnum innan félagsþjónustu

Fjölskyldusvið Suðurnesjabæjar óskar eftir samstarfi við einstaklinga og fjölskyldur til að sinna fjölbreyttum verkefnum innan félagsþjónustu

Fjölskyldusvið Suðurnesjabæjar óskar eftir samstarfi við einstaklinga og fjölskyldur til að sinna fjölbreyttum verkefnum innan Félagsþjónustu. Hentar einstaklega vel sem hlutastarf með námi og/eða með vinnu.

Persónulegur ráðgjafi stuðningur við börn

  • Helstu verkefni eru stuðningur, ráðgjöf og leiðbeiningar við börn og unglinga. Félagsleg og tilfinningaleg styrking t.d. í tengslum við tómstundir, menntun og vinnu. Byggir á gagnkvæmu trausti og vinsemd.

Stuðningsfjölskylda

  •  Helstu verkefni stuðningsfjölskyldna eru að taka reglubundið á móti barni í dvöl og leyfa því að taka þátt í daglegu fjölskyldulífi. Tilgangur með stuðningsfjölskyldu er að draga úr álagi á heimili barna, veita þeim tilbreytingu og stuðning auk þess að gefa þeim kost á auknum félagslegum tengslum. Algengast er að barn dvelji hjá stuðningsfjölskyldu eina til tvær helgar í mánuði.

Stuðningsaðili og morgunhani stuðningur við fjölskyldu

  • Stuðningsaðili veitir stuðning við fjölskyldur, t.d. að aðstoða barn við heimanám eftir skóla.
  • Morgunhanar mæta snemma á morgnanna á heimili til að aðstoða og styðja við barn að mæta í skólann, jafnvel að koma upp morgunrútínu sem stuðlar að árangri til lengri tíma.

Hæfniskröfur

  • Góðir samskiptahæfileikar
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Hreint sakavottorð
  • Góðar heimilisaðstæður og heilbrigðisvottorð sé sótt um leyfi til að gerast stuðningsfjölskylda

 

Nánari upplýsingar um starfið veita Sóley Gunnarsdóttir - soley@sudurnesjabaer.is og Vigdís Sveinsdóttir - vigdis@sudurnesjabaer.is

Símanúmer Fjölskyldusviðs er 425-3000/2