Farsældarvika hafin í Suðurnesjabæ og Vogum
Farsældarvika í Suðurnesjabæ og Vogum hófst í gær, mánudaginn 9. nóvember, með Farsældarkaffi í Samkomuhúsinu í Sandgerði. Þar komu saman tengiliðir og málstjórar farsældar til að fara yfir stöðu innleiðingar farsældarlaga, ræða árangur hingað til og horfa til næstu skrefa í áframhaldandi vinnu.
En hvað er farsæld barna?
Farsældarlögin tóku gildi 1. janúar 2022 og er markmið þeirra að tryggja börnum og foreldrum snemmtækan og samfelldan stuðning þegar þörf krefur. Lögin byggja á því að þeir sem koma að þjónustu við barn, svo sem skólar, heilbrigðisþjónusta og félagsþjónusta, vinni saman og miðli upplýsingum sín á milli með hagsmuni barnsins að leiðarljósi.
Öll börn og foreldrar hafa aðgang að tengilið sem getur veitt ráðgjöf, aðstoðað við að finna viðeigandi úrræði og hjálpað til við að rata um þjónustukerfið. Í öllum leik- og grunnskólum í Suðurnesjabæ og Vogum starfa tengiliðir farsældar.
Á Farsældarkaffinu var farið yfir stöðu innleiðingar farsældarlaga og þau verkefni sem framundan eru. Hópavinna var stór hluti dagskrárinnar þar sem þátttakendur fengu tækifæri til að miðla reynslu, ræða hvað hefur reynst vel og benda á tækifæri til úrbóta. Niðurstöður hópavinnunnar verða nýttar við áframhaldandi þróun og innleiðingu farsældar í sveitarfélögunum.
Það hefur margt áunnist í innleiðingu farsældarlaga í Suðurnesjabæ og Vogum og hefur verið lagður mikilvægur grunnur að áframhaldandi starfi. Innleiðingin er þó langtímaverkefni sem kallar á stöðuga þróun verklags, öflugt samstarf og samstillt átak allra þeirra sem koma að þjónustu við börn og fjölskyldur.
Í tilefni Farsældarvikunnar verða birt myndbönd um farsæld barna á samfélagsmiðlum yfir vikuna. Þá verður einnig send stutt kynning til forráðamanna leik- og grunnskólabarna til að auka þekkingu á farsæld barna og hlutverki tengiliða í skólum.
Farsæld barna er sameiginlegt verkefni okkar allra. Með góðu samstarfi og markvissri þróun þjónustu vinnum við að því að tryggja börnum og fjölskyldum sem bestan stuðning.