Fara í efni

Dale Carnegie fyrir ungt fólk í Suðurnesjabæ og Vogum

Dale Carnegie fyrir ungt fólk í Suðurnesjabæ og Vogum

Suðurnesjabær hefur samið við Dale Carnegie um þjálfun á ungu fólki. Námskeiðið verður haldið í Félagsmiðstöðinni Eldingu og er fyrir ungt fólk á aldrinum 13 til 15 ára (8. til 10. bekk) búsett í Suðurnesjabæ og Vogum.

Þetta er krefjandi og skemmtilegt námskeið sem ýtir undir frumkvæði, eflir leiðtogahæfileika og eykur sjálfstraust þátttakenda. Að hafa jákvæða sjálfsmynd og trú á sjálfan sig hefur sjaldan verið jafn mikilvægt og í dag með síauknum samanburði við jafnaldra. Á þessu námskeiði lærum við að þekkja okkur sjálf betur, setja okkur markmið og þjálfum færni sem gerir okkur kleift að ná þeim. Nánar um námskeiðin á dale.is

Það sem við förum yfir:

  • Þjálfum okkur í að tala fyrir framan hóp og verða betri í tjáningu
  • Eflum sjálfstraust og lærum að þekkja okkur sjálf
  • Kynnumst áhrifaríkum aðferðum til að þora að eiga frumkvæði í samskiptum og dýpka sambönd
  • Skoðum virði þess að vera duglegri og leggja okkur fram
  • Lærum aðferðir sem hjálpa okkur að vera jákvæðari
  • Lærum hvað hrós og hvatning getur haft jákvæð áhrif á okkur sjálf og aðra
  • Eflum frumkvæði og leiðtogafærni

Fyrirkomulag: Námskeiðið er einu sinni í viku, 3,5 klst í senn í 8 skipti og eitt skipti í 2,5 klst. sem eftirfylgni. Námskeiðið hefst 16. febrúar 2021.

Verð: 54.000 kr. (Almennt verð er 109.000 kr. en samningur Suðurnesjabæjar tryggir íbúum 55.000 kr. afslátt). Hægt er að nota frístundastyrkinn upp í námskeiðið. Greiðsludreifing í boði. Innifalið: Handbók og ítarefni.

Tímasetningar:

  • 17:00 - 20:30 | 16. febrúar 2021
  • 17:00 - 20:30 | 23. febrúar 2021
  • 17:00 - 20:30 | 2. mars 2021
  • 17:00 - 20:30 | 9. mars 2021
  • 17:00 - 20:30 | 16. mars 2021
  • 17:00 - 20:30 | 23. mars 2021
  • 17:00 - 20:30 | 30. mars 2021
  • 17:00 - 20:30 | 6. apríl 2021

 Skráning. Skráning á námskeiðið er á dale.is eða á skrifstofu Dale Carnegie í 555 7080