Fara í efni

Búið er að opna fyrir umsóknir í Menningarsjóð Suðurnesjabæjar

Frá afhendingu styrkja úr Menningarsjóði 2025
Frá afhendingu styrkja úr Menningarsjóði 2025
Búið er að opna fyrir umsóknir í Menningarsjóð Suðurnesjabæjar

Búið er að opna fyrir umsóknir í Menningarsjóð Suðurnesjabæjar. Umsóknarfrestur vegna úthlutana ársins 2026 er til og með 16.mars nk.

Ferða-, safna- og menningarráð mun fara yfir umsóknir sem berast og úthluta styrkjum eftir mat á umsóknum. Stefnt er að því að tilkynna úthlutun eigi síðar en 16.apríl nk.

Í reglum um sjóðinn segir m.a.:

2. gr. Tilgangur sjóðsins er að styðja við menningarstarfsemi í Suðurnesjabæ sem og styrkja einstaklinga, félagasamtök, hópa og stofnanir til lista- og menningarsköpunar í sveitarfélaginu. Til að hljóta styrk úr sjóðnum verða umsækjendur, s.s. listamenn, félagasamtök, hópar, stofnanir eða menningarviðburðir að tengjast Suðurnesjabæ á einhvern hátt og að viðburðir, ef við á, fari fram í sveitarfélaginu.

Sérstök hvatning er send til þeirra sem standa að menningarviðburðum, sýningum, tónleikum, listsýningum, fræðsluverkefnum eða annarri skapandi starfsemi að nýta sér sjóðinn. Verkefni sem tengjast bæjarhátíðinni Vitadagar eru jafnframt velkomin, enda hátíðin mikilvægur þáttur í menningarlífi Suðurnesjabæjar.

Ferða-, safna- og menningarráð Suðurnesjabæjar hvetur áhugasama einstaklinga til þess að kynna sér sjóðinn og taka þátt í að byggja upp áframhaldandi menningarstarfsemi í Suðurnesjabæ.

Reglur um Menningarsjóð Suðurnesjabæjar.

Umsókn í gegnum þjónustugáttina.