Auglýsing um skipulagsmál í Suðurnesjabæ
Tillaga að deiliskipulagi við Iðngarða í Suðurnesjabæ
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti þann 5. apríl 2023 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Iðngarða í Garði, Suðurnesjabæ skv. 41. og 42 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Leitast er við að nýta landkosti svæðisins sem best og byggja á þeim grunni sem fyrir er en á svæðinu eru nú 27 hús, íbúðar-,atvinnu- og iðnaðarhúsnæði. Samanlögð stærð svæðisins er um 21 ha, þar af 15,2 ha athafnasvæði, 2,5 ha iðnaðarsvæði og 2,0 ha íbúðasvæði ásamt opnum svæðum. Um er að ræða 40 misstórar lóðir undir fjölbreytta athafnastarfssemi og 2 nýjar íbúðahúsalóðir.
Við gildistöku skipulagsins fellur eldra deiliskipulag við Iðngarða út sem var samþykkt 12. mars 1992.
Tillagan er aðgengileg á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, mál nr. 679/2024
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi efri hluta íbúðasvæðis ofan Garðvangs – Teiga- og Klapparhverfi
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti á fundi sínum þann 2. febrúar 2022, að auglýsa breytingu á efri hluta íbúðasvæðis ofan Garðvangs, Teiga- og Klapparhverfi í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í tillögunni, dags. 14. janúar 2022, felst endurskoðun á efri hluta íbúðasvæðisins með það markmið að mæta þörf fyrir minni og hagkvæmari íbúðir. Í breyttri deiliskipulagstillögu af þessum hluta hverfisins er gert ráð fyrir alls 259 íbúð í 86 húsum sem er fjölgun um 118 íbúðir frá sama hluta af áður samþykktu skipulagi. Sjá svæði auðkennt ÍB9 í Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022 - 2034.
Tillagan er aðgengileg á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, mál nr. 683/2024
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á https://skipulagsgatt.is/
Umsagnarfrestur er til og með 17. júlí 2024.
Jón Ben. Einarsson,
Skipulagsfulltrúi Suðurnesjabæjar