Fara í efni

Auglýsing um skipulagsmál í Suðurnesjabæ

Auglýsing um skipulagsmál í Suðurnesjabæ

Aðalskipulag Suðurnesjabæjar – Breyting á iðnaðarsvæði I5, I7 og strandsvæði Bergvík - Kynning tillögu.

Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti 15. júlí 2026 að kynna tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034 skv. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Viðfangsefni aðalskipulagsbreytingar er að laga stefnu og ákvarðanir aðalskipulags að nýjum forsendum um uppbyggingu í Bergvík. Breytingin felst í uppfærðum skilmálum, auknu byggingarmagni fyrir iðnaðarsvæði, stækkun iðnaðarsvæðis I5 til austurs, niðurfellingu iðnaðarsvæðis I7 í Selvík og aðlögun strandsvæðis að þeirri breytingu, auk þess sem sett er inn tenging fyrir rafveitu/jarðstreng inn á iðnaðarsvæðið. Nýir jarðstrengir eru 220 kV og eru sett inn ákvæði um helgunarsvæði þeirra. Dregin eru þéttbýlismörk um iðnaðarsvæðið í Bergvík og næsta nágrenni þess og landnotkun sýnd á þéttbýlisuppdrætti.

Aðalskipulagsbreytingin er unnin í tengslum við nýtt deiliskipulag fyrir Bergvík. Tilgangurinn með breytingunni er að uppfæra stefnu aðalskipulags Suðurnesjabæjar þannig að hún endurspegli þá framtíðarsýn sem lögð er til grundvallar í K64 hringrásariðngarði og þróun nærsvæðis Keflavíkurflugvallar. Með breytingunni er samræmi milli fyrirhugaðrar uppbyggingar í Bergvík og gildandi skipulagsáætlana sveitarfélagsins og nærliggjandi svæða.

Tillagan er aðgengileg á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, mál nr. 1040/2025.

Bergvík – heildarendurskoðun deiliskipulags - Kynning tillögu.

Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti 15. júlí 2026 að kynna tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Bergvík skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Í Bergvík er gert ráð fyrir að skapist tækifæri til að byggja upp iðnaðar- og athafnasvæði sem hefur verkefnaheitið K64 Hringrásariðngarður. Deiliskipulagið er heildarendurskoðun á gildandi deiliskipulagi Iðnaðarlóðar við Berghóla (álver við Helguvík) frá 2008 m.s.br. sem fellur úr gildi við staðfestingu þessa deiliskipulags. Deiliskipulagið er unnið á vegum íslenska ríkisins/Kadeco í samráði við skipulagsyfirvöld Suðurnesjabæjar og Landhelgisgæslu Íslands.

Deiliskipulagið gerir ráð fyrir stærri og minni lóðum fyrir fjölbreytta starfsemi með áherslu á nýsköpun, grænan iðngarð, hringrásarhagkerfið og framleiðslu-, rannsóknar- og þróunarfyrirtæki. Ef fram kemur áhugi á starfsemi sem tengist sorporkustöð eða eldsneyti fyrir orkuskipti þá er horft til þess að slík starfsemi gæti komið til á norðurhluta svæðisins. Umhverfismál eru lykilatriði við undirbúning, hönnun, byggingu og rekstur iðnaðarstarfsemi á svæðinu. Grænar jarðvegsmanir eru við Garðskagaveg og grænir geirar með skjólbelti eru dregnir inn á iðnaðarsvæðið með megin aðkomugötunum; Helguvíkur- og Bergvíkurvegi. Gert er ráð fyrir stígum og slóðum meðfram strandlengjunni og á náttúruríku hverfisvernduðu svæði við Bergvötn.

Tillagan er aðgengileg á skipulagsgátt HMS, mál nr. 1042/2025.

----

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á https://skipulagsgatt.is/

Umsagnarfrestur er til og með 13. nóvember 2026

Jón Ben. Einarsson,

Skipulagsfulltrúi Suðurnesjabæjar