Fara í efni

Ársreikningur Suðurnesjabæjar 2025

Ársreikningur Suðurnesjabæjar 2025

Á 91. fundi bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar þann 6. maí 2026 var ársreikningur sveitarfélagsins fyrir árið 2025 samþykktur samhljóða.

Helstu lykiltölur í ársreikningi:

Rekstrartekjur í samanteknum rekstrarreikningi fyrir A og B hluta námu 7.969 milljónum króna, en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir að rekstrartekjur væru 7.568 milljónir. Rekstrartekjur A hluta bæjarsjóðs voru 7.463 milljónir en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir að rekstrartekjur væru 7.219 milljónir króna.

Rekstrarniðurstaða í samanteknum rekstrarreikningi fyrir samstæðu A og B hluta er jákvæð að fjárhæð 401 milljónir króna en í fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir að niðurstaðan væri jákvæð 243 milljónir. Rekstrarafkoma A hluta bæjarsjóðs er jákvæð að fjárhæð 260 milljónir en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir að niðurstaðan væri jákvæð að fjárhæð 230 milljónir króna.

Samkvæmt fjármálareglu Sveitarstjórnarlaga uppfyllir Suðurnesjabær jafnvægisreglu um rekstrarniðurstöðu, þar sem samantekin rekstrarniðurstaða á þriggja ára tímabili er jákvæð.

Rekstrarafkoma samstæðu A og B hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði, eða framlegð er jákvæð að fjárhæð 988 milljónir króna, eða 12,4%. Rekstrarafkoma A hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði, eða framlegð er jákvæð að fjárhæð 701 milljón króna, eða 9,4%.

Heildareignir í samanteknum reikningi A og B hluta eru 11.830 milljónir. Heildar skuldir og skuldbindingar eru kr. 6.281 milljónir. Lífeyrisskuldbinding A og B hluta í árslok 2024 var 1.392 milljónir króna. Langtímaskuldir A og B hluta við lánastofnanir eru 3.623 milljónir og næsta árs afborganir langtímalána verða 367 milljónir. Eigið fé í samanteknum reikningi A og B hluta er 5.549 milljónir.

Skuldaviðmið hjá A hluta bæjarsjóðs var 36,28% í lok árs 2025 en var 44,82% í árslok 2024. Skuldaviðmið skv. 2. mgr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga var var 52,28% hjá A og B hluta í árslok 2025, en var 62,23% í árslok 2024. Samkvæmt fjármálareglu Sveitarstjórnarlaga má þetta viðmið ekki vera hærra en 150%.

Rekstur í samanteknum reikningsskilum A og B hluta skilaði 958 milljónum í veltufé frá rekstri, sem er um 12% af rekstrartekjum. Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum A og B hluta nam 412 milljónum. Á árinu 2025 voru ekki tekin ný langtímalán. Handbært fé lækkaði um 152 milljónir frá fyrra ári og var handbært fé í árslok 2025 um 565 milljónir.

Íbúafjöldi í Suðurnesjabæ í árslok 2025 var 4.232 samkvæmt skráningu hjá Hagstofu en var 3.987 í árslok 2024. Íbúum fjölgaði því um 245 á árinu 2025, eða um 6%.

Rekstur málaflokka í A hluta bæjarsjóðs var í góðum takti við fjárhagsáætlun ársins. Rekstrarniðurstaða Eignasjóðs og hlutdeild í sameiginlega reknum samstarfsverkefnum var mun jákvæðari en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Þá var rekstrarniðurstaða stofnana í B hluta nokkuð jákvæðari en áætlun gerði ráð fyrir.

Helstu frávik í rekstri í samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta miðað við fjárhagsáætlun felast m.a. í minni hækkun lífeyrisskuldbindinga en gert var ráð fyrir, en á árinu 2025 náðist samkomulag við Ríkissjóð um uppgjör á lífeyrisskuldbindingum vegna Fræðaseturs sem lækkar skuldbindingar sveitarfélagsins. Einnig voru fjármagnsgjöld mun lægri en áætlun gerði ráð fyrir, sem endurspeglar m.a. að engin ný langtímalán voru tekin á árinu 2025. Helstu frávik til aukinna tekna frá því sem gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun koma helst fram í hærri tekjum af útsvari, sem og að aðrar tekjur voru hærri en áætlun gerði ráð fyrir.

Niðurstöður ársreiknings 2025 fela í sér að rekstur Suðurnesjabæjar gekk vel á árinu 2025 og traustar stoðir eru undir fjárhag sveitarfélagsins.