Fara í efni

Alþingiskosningar laugardaginn 30.nóvember 2024

Alþingiskosningar laugardaginn 30.nóvember 2024

Kjörskrá og kjörstaðir í Suðurnesjabæ.

Kjörskrá í Suðurnesjabæ vegna Alþingiskosninga sem fram fara þann 30. nóvember 2024, liggur frammi almenningi til sýnis í ráðhúsunum í Garði og Sandgerði frá 8. nóvember og fram að kjördegi.

Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Einnig er bent á kosning.is - Hvar á ég að kjósa. 

Athugasemdum við kjörskrá skal beint til Þjóðskrár .

  • Kjörfundur fyrir kjósendur í póstnúmerum 245 og 246 Sandgerði er í Sandgerðisskóla.
  • Kjörfundur fyrir kjósendur í póstnúmerum 250 og 251 Garður er í Gerðaskóla.

Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.

Kjördagur Alþingiskosninga 30. nóvember 2024.

  • Kjörstaðir opna kl. 09:00 og loka kl. 22:00.

Á kjördag mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur í Sandgerðisskóla sími 893 3730.

Yfirkjörstjórn Suðurnesjabæjar