Fara í efni

Aðstoðarskólastjóri Gerðaskóla

Aðstoðarskólastjóri Gerðaskóla

Suðurnesjabær óskar eftir að ráða aðstoðarskólastjóra Gerðaskóla. Við leitum að metnaðarfullum leiðtoga til að stýra framsæknum skóla í ört stækkandi sveitarfélagi. Mikilvægt er að viðkomandi búi yfir leiðtogahæfileikum, hafi viðtæka þekkingu á skólastarfi, framsækna skólasýn og er tilbúinn að viðhalda öflugu skólasamfélagi í samvinnu við íbúa og starfsfólk skólans.

Gerðaskóli er 250 nemenda heilsueflandi grunnskóli sem vinnur eftir stefnunni Jákvæður agi með það að markmiði að allir fái tækifæri til að vera besta útgáfan af sjálfum sér í leik og starfi. Í skólanum starfa áhugasamir og metnaðarfullir starfsmenn sem leggja áherslu á að skapa námsumhverfi þar sem allir eru virkir, öllum líði vel og allir læra að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu.

Húsnæði skólans er rúmgott og skólalóðin stór og skemmtileg til útivistar. Tónlistarskólinn er með aðstöðu í tónmenntastofu í skólanum og er frístundaskólinn einnig starfræktur innan veggja hans. Leiðarljós Gerðaskóla er virðing, ábyrgð, árangur og ánægja

Nánari upplýsingar um skólann má einnig finna á heimasíðunni www.gerdaskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Er staðgengill skólastjóra
  • Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans í samráði við skólastjóra
  • Veita faglega forystu og mótar framtíðarsýn í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla, lög um grunnskóla og stefnum sveitarfélagsins í skólamálum
  • Vinnur við þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðla að framförum, árangri, velferð og vellíðan nemenda og starfsfólks
  • Er í samvinnu við fræðsluyfirvöld í sveitarfélaginu um stefnumótun og ákvarðanatökur
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf sem kennari
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða kostur
  • Farsæl kennslu og/eða stjórnunarreynsla
  • Leiðtogafærni, frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt
  • Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, á íslensku og ensku

Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst næstkomandi.

Umsóknarfrestur er til og með 28. maí 2023.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Björg Sigurðardóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, gudrun@sudurnesjabaer.is eða í síma 425-3000. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsókn sal að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir hæfni sinni í starfið. Umsóknum skal skilað á rafrænu formi á netfangið afgreidsla@sudurnesjabaer.is