17. júní í Suðurnesjabæ
17. júní í Suðurnesjabæ
09. júní 2026
Þjóðhátíðardeginum 17. júní verður fagnað í Suðurnesjabæ með skemmtilegri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Hátíðin í ár verður haldin við Gerðaskóla.
Dagskráin hefst kl.12:00 og verður hún fjölbreytt og fjölskylduvæn.
Auk hátíðarinnar við skólann verður Byggðasafnið á Garðskaga opið frá kl.10:00-17:00. Aðgangur á safnið er ókeypis og verður íslenski fáninn, fánaskraut og fleira til sölu.
Dagskrá:
- Fánahylling í umsjón Reynis/Víðis
- Ávarp fjallkonu: Una Rós Gísladóttir, nýstúdent
- Hátíðarræða: Jón Ragnar Ástþórsson, skólastjóri Gerðaskóla
- Rokkhljómsveit Tónlistarskólans í Garði
- Sólon og Dimma dúskur
- Sirkus Íslands
- Nammikast úr körfubíl slökkviliðsins
- Félagar úr hestamannafélaginu Mána teyma undir börnum
- Sjoppa í umsjón Reynis/Víðis
- Pylsugrill í boði Suðurnesjabæjar
- Hoppukastalar
- Andlitsmálning
- Barnalestin
Suðurnesjabær óskar íbúum og gestum gleðilegrar þjóðhátíðar og hvetur alla til að taka þátt í hátíðarhöldunum.