Íslandsleikar Allir með
Íslandsleikar Allir með
Helgina 28.-29. mars fara fram Íslandsleikar Allir með í Reykjanesbæ.
Íslandsleikarnir er íþróttahátíð fyrir börn og ungmenni sem finna sig ekki í hefðbundnu íþróttastarfi og eru með fötlun og/eða stuðningsþarfir.
Á Íslandsleikunum er keppt í þremur íþróttagreinum;
- fótbolta
- körfubolta
- handbolta
Einnig verða opnar æfingar í þessum sömu greinum þar sem hægt verður að prófa þær.
Hægt er að skrá lið en einstaklingar geta líka skráð sig og verða þá settír í lið.
Leikarnir eru fyrir iðkendur á öllum aldri og munu keppendur koma úr öllum landshlutum til að taka þátt.
Gisting er í boði í skólastofum í Holtaskóla föstudags- og eða laugardagskvöld. Þá er einnig hádegis-, kvöld- og morgunverður í boði í gegnum leikana.
Skráning fer fram í gegnum Abler og má finna skráningarhlekkinn hér



