Íbúafundur í Suðurnesjabæ
14. janúar
19:30
Gerðaskóli
Íbúafundur í Suðurnesjabæ
Kæru íbúar Suðurnesjabæjar!
Við viljum bjóða ykkur velkomin á opinn íbúafund þar sem rætt verður um stofnun nýs íþróttafélags. Fundurinn er tækifæri til að kynna hugmyndina, fá ábendingar og skoðanir frá íbúum og byggja sterkan grunn að íþróttastarfi fyrir framtíðina.
Upplýsingar um fundinn:
Dagsetning: Þriðjudaginn 14. janúar 2025
Tími: kl. 19:30
Staðsetning: Gerðaskóli, Garðsbraut 90
Á fundinum munum við fjalla um:
-Markmið og tilgang nýs íþróttafélags.
-Hvernig íbúar geta tekið þátt í uppbyggingunni.
-Ásamt öðrum málum sem við koma nýju íþróttafélagi.
Við hvetjum alla áhugasama íbúa, ungmenni, foreldra og aðra að mæta og taka þátt í þessu spennandi verkefni sem miðar að því að efla íþróttalíf í bænum.
Verið öll velkomin!
Samráðshópur um nýtt íþróttafélag í Suðurnesjabæ.