Daníel Hjálmtýsson og Fríða Dís í Hvalsneskirkju
19. desember
20:00
Hvalsneskirkja
Daníel Hjálmtýsson og Fríða Dís í Hvalsneskirkju
Daníel Hjálmtýsson og Fríða Dís syngja jólalög í Hvalsneskirkju í Suðurnesjabæ 19. desember nk. ásamt Smára Guðmundssyni og sérstökum gestum.
Mun þetta vera í fyrsta sinn sem Daníel og Fríða leiða saman hesta sína en bæði hafa þau átt mikilli velgengni að fagna undanfarin ár, bæði hér heima og erlendis í sitthvoru lagi.
Talið verður í jólalög á ljúfum og notalegum nótum í Hvalsneskirkju sem umlukin er fallegri náttúru Suðurnesjabæjar og eru allir velkomnir. Hlýleg og nærandi stund á aðventunni.
Miðasala fer fram á Tix.is