Almyrkvi á sólu 12. ágúst 2026, fræðslusýning á Byggðasafninu á Garðskaga.
13. júl - 14. ágú
10:00-17:00
Byggðasafnið á Garðskaga
Almyrkvi á sólu 12. ágúst 2026, fræðslusýning á Byggðasafninu á Garðskaga.
Almyrkvi á sólu 12. ágúst 2026, fræðslusýning á Byggðasafninu á Garðskaga. Sýningin er sett upp í samstarfi við Sævar Helga Bragason - Stjörnu Sævar sem lagði til fræðsluefni á 10 fræðslu- og sýningarspjöld.
Menningarsjóður Suðurnesjabæjar og Uppbyggingarsjóður Suðurnesja styrktu gerð þessarar sýningar, sem ætluð er til að fræða íbúa og gesti um þennan einstaka atburð sem mun eiga sér stað í ágúst. Sýningin er á ensku og íslensku.
Bókin Sólmyrkvar, vísindalæsi eftir Sævar Helga er til sölu á byggðasafninu.
Sólmyrkvagleraugu með merki Suðurnesjabæjar eru til sölu á safninu. Gleraugun eru frá Stjörnu-Sævari og fer ágóði þeirra hjá Sævari til gerðar fræðsluefnis um sólmyrkva og fræðslustarfs.
Byggðasafnið er opið alla daga frá kl. 10-17 og það kostar ekkert að heimsækja safnið og skoða fræðslusýninguna.