Fara í efni

Bæjarráð

193. fundur 01. júlí 2026 kl. 15:20 - 17:31 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Svavar Grétarsson formaður
  • Haraldur Helgason varaformaður
  • Daði Bergþórsson aðalmaður
  • Anton Kristinn Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Árni Gísli Árnason bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Árni Gísli Árnason bæjarstjóri
Dagskrá
Í upphafi fundar leitaði formaður samþykki fundarins til að bæta við eftirfarandi málum á dagskrá með afbrigðum:

Mál nr.13

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að bæta við máli nr. 13 á dagskrá.

Mál nr.14

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að bæta við máli nr.s 14 á dagskrá.

1.Heiðarholt skammtímadvöl

2210060

Minnisblað varðandi tímabundna aukningu á þjónustu skammtímadvalar og beiðni um viðauka. Guðrún Björg Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Tillaga um tímabundna aukningu á þjónustu skammtímadvalar samþykkt samhljóða og bæjarstjóra falið að vinna að viðauka við fjárhagsáætlun í samræmi við minnisblaðið.

2.Frístundamiðstöð

2501075

Minnisblað um frístundarheimili í Sólborg, kynning á skipulagi og kostnaðarþáttum. Guðrún Björg Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs og Heiða Ingólfsdóttir sviðsstjóri mennta- og tómstundasviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

3.Beiðni um auka fjárveitingu vegna húsbúnaðar í matsal

2606133

Minnisblað varðandi beiðni um aukna fjárveitingu vegna húsbúnaðar fyrir matsal í Gefnarborg. Heiða Ingólfsdóttir sviðsstjóri mennta- og tómstundasviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að endurnýja húsbúnað í matsal og bæjarstjóra falið að vinna viðauka við fjárhagsáætlun í samræmi við minnisblaðið.

4.Beiðni um aukið fjármagn vegna stuðningsþarfa

2606125

Beiðni um auka fjárveitingu vegna stuðningsþarfa. Heiða Ingólfsdóttir sviðsstjóri mennta- og tómstundasviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að auka fjárveitingu vegna stuðningsþarfa og bæjarstjóra falið að vinna viðauka við fjárhagsáætlun í samræmi við minnisblaðið.

5.Rekstraryfirlit 2026

2604147

Rekstraryfirlit janúar - maí 2026. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

6.Fjárhagsáætlun 2026 - Viðaukar

2604146

Viðauki nr. 6 - Golfklúbbur Suðurnesja. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Viðauki nr. 6 samþykktur samhljóða og vísað til staðfestingar hjá bæjarstjórn.

7.Fjárhagsáætlun 2026 - Viðaukar

2604146

Viðauki nr. 7 - vegna breytinga á 4.gr. fylgiskjals I við reglugerð nr.1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Viðauki nr. 7 samþykktur samhljóða og vísað til staðfestingar hjá bæjarstjórn.

8.Forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2027-2031

2606159

Minnisblað frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 12. júní 2026, varðandi forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga fyrir árin 2027-2031.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

9.Míla hf. - Samkomulag um kaup á lagnaröri - samningsdrög

2606148

Minnisblað varðandi sölu á lagnaröri sem nýtist fyrir tengingu ljósleiðara.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að selja Mílu hf. lagnarör sem nýtist fyrir tengingu ljósleiðara í Suðurnesjabæ og bæjarstjóra falið að skrifa undir samkomulag þess efnis.

10.Siðareglur og góðir starfshættir kjörinna fulltrúa sbr. 22.gr. samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar.

2605160

Endurskoðun siðareglna kjörinna fulltrúa í Suðurnesjabæ.
Tillaga frá fulltrúum D og S lista um eftirfarandi breytingu á 11.gr.:
11. grein Ágreiningur og brot á siðareglum
Komi upp ágreiningur, brot á siðareglum eða tilfelli þar sem grípa þarf til viðbragða, t.d. vegna trúnaðarbrests er mál tekið fyrir sem trúnaðarmál í bæjarráði og því fundinn faglegur og málefnalegur farvegur og vísað til siðanefndar Sambands íslenskra sveitafélaga.

Afgreiðsla:
Breyting á 11.gr. siðareglna og góðum starfsháttum kjörinna fulltrúa samþykkt samhljóða og vísað til staðfestingar hjá bæjarstjórn.

11.Úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja

2606046

Tilnefning á fulltrúum í Úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja til stjórnar Sambands sveitarfélag á Suðurnesjum. Tveir aðalfulltrúar og tveir til vara.
Eftirfarandi tillaga lögð fram varðandi tilnefningu í úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja:

Aðalmenn:
Agnes Helgadóttir
Róbert Páll Arason

Varamenn:
Thelma Dís Eggertsdóttir
Sindri Lars Ómarsson

Afgreiðsla:
Tillaga um tilnefningu í úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóð samþykkt með atkvæðum fulltrúa S og D lista. Fulltrúi M lista sat hjá.

12.Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

2005085

Tilnefning fulltrúa í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks, 2 aðalmenn og 2 til vara.
Eftirfarandi tillaga lögð fram varðandi tilnefningu í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks:

Aðalmenn:
Thelma Dís Eggertsdóttir
Sigrún Harpa Sigurjónsdóttir Heide

Varamenn:
Berglind Lára Haraldsdóttir
Erla Jóhannsdóttir

Afgreiðsla:
Tillaga um tilnefningu í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks samþykkt samhljóða.

13.Félag eldri borgara í Suðurnesjabæ - Samningar o.fl.

2605023

Beiðni Félags eldri borgara í Suðurnesjabæ varðandi tímabundið aðgengi að aðstöðu.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að gera samkomulag um tímabundin afnot af aðstöðunni í samræmi við umræður á fundinum.

14.Sólborgir

2607004

Beiðni vegna afnota af athafnarsvæði og vilyrði fyrir breyttu deiliskipulagi.
Afgreiðsla:
Mál í vinnslu. Bæjarráð óskar eftir frekari kynningu á verkefninu.

Fundi slitið - kl. 17:31.

Getum við bætt efni síðunnar?