Vel heppnaður 17.júní
17.júní var haldinn hátíðlegur í Suðurnesjabæ við góða þátttöku íbúa og gesta.
Dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg en hún hófst með fánahyllingu í umsjón Reynis og Víðis og á eftir fylgdi hátíðardagskrá. Arnór Sindri Sölvason starfsmaður Sandgerðisskóla var kynnir hátíðarinnar. Fjallkonan, Una Rós Gísladóttir, nýstúdent flutti ljóð eftir Bubba Morthens og hátíðarræðu dagsins flutti Jón Ragnar Ástþórsson, skólastjóri Gerðaskóla. Rokkhljómsveit Tónlistarskólans í Garði spiluðu og sungu nokkur lög. Barnastjörnurnar Sólon og Dimma dúskur mættu á svæðið og dagskránni á sviði lauk síðan með skemmtilegu atriði frá Sirkus Íslands.
Á svæðinu var úr nógu að velja fyrir börnin: hoppukastalar, barnalest, andlitsmálning, grillaðar pylsur í boði Suðurnesjabæjar, sjoppa frá Reyni/Víði, hestar og nammikast úr slökkviliðsbíl Brunavarna Suðurnesja.
Suðurnesjabær þakkar öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd dagsins og þeim fjölmörgu íbúum sem mættu og gerðu daginn eftirminnilegan.