Fara í efni

Varðandi skólahald grunn- og leikskóla í Suðurnesjabæ

Varðandi skólahald grunn- og leikskóla í Suðurnesjabæ

Eins og fram kom í tilkynningu í gær, þá eru forráðamenn skólabarna hvattir til að meta hvort aðstæður eru öruggar og hvort aðstæður eru fyrir börn til að komast í og úr skóla. Mikilvægt er að tilkynna skóla um forföll vegna veðurs.

Veðurspá er að ganga eftir og má vænta þess að veður verði með versta móti a.m.k. fram í hádegið.

Skólarnir eru opnir fyrir þau börn sem koma í skólana en gera má ráð fyrir verulegri röskun á skólastarfi í dag.

Sem fyrr eru forráðamenn hvattir til að fylgjast með veðurspám og færð á vegum og innanbæjar.

Neyðarstjórn Suðurnesjabæjar