Fara í efni

Úthlutun úr Menningarsjóði Suðurnesjabæjar 2026

Úthlutun úr Menningarsjóði Suðurnesjabæjar 2026

Styrkjum úthlutað úr Menningarsjóði Suðurnesjabæjar

Föstudaginn 17. apríl fór fram úthlutun styrkja úr Menningarsjóði Suðurnesjabæjar við hátíðlega athöfn í Byggðasafninu á Garðskaga.

Hlutverk Menningarsjóðs Suðurnesjabæjar er að styrkja menningarstarfsemi í Suðurnesjabæ með fjárframlögum og efla þannig einstaklinga og félagasamtök til virkrar þátttöku í menningarlífi bæjarins.

Oddný Kristrún Ásgeirsdóttir, formaður Ferða-, safna- og menningarráðs, stýrði dagskrá. Tónlistaratriði voru í höndum nemenda frá tónlistarskólunum í Suðurnesjabæ. Kristín Hrefna Ásmundsdóttir nemandi í Tónlistarskóla Sandgerðis spilaði á píanó og Elísa Tan Doro-on frá Tónlistarskólanum í Garði spilaði á píanó, munnhörpu og söng.

Við athöfnina voru styrkir veittir til fjölbreyttra verkefna sem endurspegla gróskumikið menningarlíf í sveitarfélaginu. Í ár bárust 17 umsóknir og hljóta 11 umsóknaraðilar styrk að upphæð 2.080.000 krónur. 

Þau sem hlutu styrk að þessu sinni voru:

  • Byggðasafnið á Garðskaga fyrir verkefnið Fræðslusýning um almyrkva á sólu. Styrkveiting: 200.000 kr.
  • Golfklúbbur Sandgerðis fyrir verkefnið Sýning í tilefni 40 ára afmælis GSG. Styrkveiting: 100.000 kr.
  • Hilmar B. Bárðarson fyrir verkefnið Ár í Miðhúsum, heimildamynd. Styrkveiting: 250.000 kr.
  • Hjalti Ö. Ólafsson fyrir verkefnið Ástarsaga í vitunum. Styrkveiting: 200.000 kr.
  • Kaffi Gola fyrir verkefnið Tónleikar Kaffi Golu sumarið 2026. Styrkveiting: 180.000 kr.
  • Kaffi Gola fyrir verkefnið Leppalúði gengur aftur. Styrkveiting: 300.000 kr.
  • Knattspyrnufélagið Reynir fyrir verkefnið Sýning í tilefni 90 ára afmælis félagsins. Styrkveiting: 100.000 kr.
  • Knattspyrnufélagið Víðir fyrir verkefnið Sýning í tilefni 90 ára afmælis félagsins. Styrkveiting: 100.000 kr.
  • Sigurbjörg Hjálmarsdóttir fyrir verkefnið Inn með gleði og frið. Styrkveiting: 200.000 kr.
  • Sigurbjörg Hjálmarsdóttir fyrir verkefnið Upptökur á tónlist við ljóð Ingibjargar Sigurðardóttur. Styrkveiting: 200.000 kr.
  • Söngsveitin Víkingar fyrir verkefnið 30 ára starfstónleikar. Styrkveiting: 250.000 kr.

Í reglum sjóðsins kemur fram að markmið hans sé að efla menningarstarfsemi í Suðurnesjabæ og styðja við öflugt menningarlíf með beinum fjárframlögum. Sjóðurinn fær árlegt framlag úr fjárhagsáætlun sveitarfélagsins en getur einnig tekið við gjöfum sem ætlaðar eru til að efla menningarlíf á svæðinu.

Styrkhöfum er óskað til hamingju með styrkina og góðs gengis með verkefnin sín. Þá eru íbúar og gestir Suðurnesjabæjar hvattir til þess að taka þátt í þeim fjölbreyttu viðburðum og verkefnum sem styrkþegar standa að.